Innlent

Fimmtán handteknir - lagt hald á eggvopn

Frá aðgerðum lögreglunnar í morgun.
Frá aðgerðum lögreglunnar í morgun. Mynd/VIlli
Alls voru fimmtán karlar handteknir í aðgerðum lögreglu í Kópavogi í morgun. Þeir voru færðir til yfirheyrslu hjá lögreglu, en nokkrum þeirra hefur þegar verið sleppt úr haldi.

Líklegt þykir að hinir losni einnig úr haldi lögreglu þegar líður á daginn, en rannsókn málsins miðar vel.

Mennirnir eru allir af erlendu bergi brotnir og eru enn fremur með stöðu hælisleitenda.

Lagt var hald á muni og lítilræði af fíkniefnum í aðgerðum lögreglunnar. Einn mannanna hefur játað eign sína á fíkniefnunum og telst sá hluti málsins upplýstur.

Á meðal muna sem lögreglan tók í sína vörslu eru eggvopn, sem eru talin brjóta í bága við vopnalöggjöf.

Við aðgerðirnar í morgun naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og fíkniefnaleitarhunda frá tollinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×