Heimir: Ánægður hvernig menn svöruðu gagnrýni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. september 2013 21:49 Mynd/Valli
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck voru eldhressir á blaðamannafundi eftir 2-1 sigurinn á Albönum í kvöld. Svínn bað Heimi um að taka frumkvæðið á fundinum og fara yfir leikinn. Lagerbäck vildi að öllum væri ljóst að þeir ynnu sem teymi og bæru mikla virðingu hvor fyrir öðrum. Heimir sagðist ánægður með hvernig taktíkin sem íslenska liðið lagði upp með hefði virkað. Miklu betur en í síðustu leikjum. „Persónulega er ég ánægður með hvernig þeir sem fengu mesta gagnrýni eftir leikinn í Sviss svöruðu fyrir sig,“ sagði Heimir. Taldi Heimir upp Ara Frey Skúlason, Birki Má Sævarsson, Kára Árnason og Hannes Þór Halldórsson. „Þeir vissu að við vorum að hugsa um að breyta liðinu. Þetta eru menn. Þeir sýna að þeir eru menn til að taka gagnrýni,“ sagði Heimir hrósaði viðhorfi Helga Vals Daníelssonar sérstaklega. Helgi Valur fékk bágt fyrir frammistöðu sína í jafnteflinu í Sviss þar sem honum var skipt af velli. Heimir sagði viðbrögð Helga til fyrirmyndar en miðjumaðurinn ætlar að svara fyrir sig næst þegar hann fær tækifæri í liðinu. Eina breytingin á byrjunarliðinu frá því í Sviss var innkoma Eiðs Smára fyrir Helga Val. Fyrir vikið spilaði Gylfi Þór Sigurðsson á miðjunni með Aroni Einari. „Við erum svolítið hræddir við að hafa Gylfa Þór á miðjunni og missa jafnvægið hvað varnarleikinn varðar á miðjunni,“ sagði Heimir. Hann var nokkuð sáttur með leik Eiðs Smára á miðjunni. „Það er alltaf vafi hvort hann spili eða ekki af því hann spilar ekki níutíu mínútur með félagsliði sínu,“ sagði Heimir. Hann benti á að hefði Eiður spilað meira í Sviss hefði það líkast til setið í honum. Þess í stað var hægt að fullnýta hann í kvöld. Leikmenn halda nú heim til sín eftir samveru undanfarinnar viku. Þjálfararnir ætla þó að fagna sigrinum saman. „Ég ætla að fagna með Heimi ef hann er til. En kannski á hann betri vini en mig,“ sagði Lagerbäck léttur.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Birti margar myndir af sér að „bóka“ Bellingham Fótbolti Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Fótbolti Bretland - Ísland | Verða að sækja sigur í Manchester Körfubolti Dramatík í kringum enska landsliðið: Eldingar, hótelhávaði og njósnir Fótbolti Skoraði eitt fallegasta mark HM og leitaði uppi kærustuna í stúkunni Fótbolti Afríska innrásin á HM stöðvuð í fæðingu Fótbolti Meira en hundrað lögreglumenn fyrir utan HM-hótel Englands Fótbolti Solbakken neitar að hafa sýnt Ancelotti vanvirðingu Fótbolti Segir skilið við bæði landslið og félagslið Fótbolti Fleiri fréttir Real Madrid staðfestir komu Hollendingsins Rígur úr ensku úrvalsdeildinni heldur áfram í kvöld Segir Klopp taka við þýska landsliðinu Segir skilið við bæði landslið og félagslið Maður dagsins á HM: „Býflugan“ fann gleðina aftur í Katalóníu Sautján ára hetja Breiðabliks: Kemur þegar maður trúir á Guð og sig sjálfan Sjáðu mörk og atvik helgarinnar í Bestu deildinni „Gleður mitt Blikahjarta“ Dramatík í kringum enska landsliðið: Eldingar, hótelhávaði og njósnir „Með ólíkindum að við höfum tapað þessum leik“ Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Afríska innrásin á HM stöðvuð í fæðingu Skoraði eitt fallegasta mark HM og leitaði uppi kærustuna í stúkunni Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Meira en hundrað lögreglumenn fyrir utan HM-hótel Englands Solbakken neitar að hafa sýnt Ancelotti vanvirðingu Birti margar myndir af sér að „bóka“ Bellingham Messi segir að Argentína þurfi að laga marga slæma hluti Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Dagurinn hans Ounahi og Marokkó fyrst í átta liða úrslit Ancelotti svarar fyrir sig: Sir Alex Ferguson sá eini sem er hæfari en ég ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Endurkoman dugði ekki í síðasta leiknum á EM Leik Frakklands á HM í kvöld gæti verið frestað Markalaust í rjómablíðunni á Suðurnesjunum Óvissa er um framtíð Rashford ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Baulað á enska landsliðið Sjá meira