"Við vanmátum skuldir heimilanna“ 1. júní 2013 14:00 Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á flokksstjórnarfundinum í dag.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun að flokkurinn hefði vanmetið skuldir heimilanna í aðdraganda kosninganna. Þá hefði framganga flokksins í Icesave-málinu reynst honum erfið. Árni Páll sagði að flokkurinn hefði tapað miðju stjórnmálanna yfir til Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Samfylkingin fékk 12,9 prósenta fylgi í alþingiskosningunum hinn 27. apríl sl. Það er lakasta útkoma flokksins frá því hann bauð fyrst fram í kosningunum árið 1999. Formaður flokksins leitaðist við að skýra ástæður þessa í framsöguerindi sínu á flokksstjórnarfundinum. „Við vanmátum skuldir heimilanna og Icesave-málið og framganga okkar í því var okkur erfið. Við fengum á okkur ásýnd þeirra sem voru að tala fyrir því að almenningur ætti að axla byrðar að óþörfu. Það var vond ásýnd og hún var ekki rétt. Og kannski birtumst við eins og valdaflokkur, það kemur mikið fram í viðbrögðum frá flokksmönnum. Að við höfum birst sem valdaflokkur (...) og að sumu leyti misst þessa tengingu við hina breiða fjölda í landinu. Fylgiskannanir staðfesta þetta að sumu leyti,“ sagði Árni Páll í framsöguerindi sínu. Misstu sjónar á hlutverki Samfylkingarinnar „Við töpuðum meira fylgi til Framsóknar en Bjartrar Framtíðar. Þó vorum við mjög upptekin af því allt síðasta ár að keppa við Bjarta Framtíð. Við töpum nærri tvöfalt meira fylgi til Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks samanlagt heldur en til Bjartrar Framtíðar. Við töpuðum með öðrum orðum þeirri miðju stjórnmálanna sem kom til liðs við okkur og gerði Samfylkinguna að breiðfylkingu og gerði okkur mögulegt að hafa lykiláhrif á samfélagsþróunina. Því má segja að við höfum misst sjónar á þeirri staðreynd að Samfylkingin er ekki gamaldags vinstriflokkur í hefðbundnum skilningi. Hún var stofnuð til að vera fjölbreytt breiðfylking, frá hinu ysta vinstri og yfir miðjuna. Og við misstum sjónar á því og náðum ekki að halda í þetta fylgi,“ sagði Árni Páll.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira