Sigurlíkur Íslands 1 á móti 150 Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 13. maí 2013 14:31 Eyþór Ingi mun hefja upp raust sína fyrir Íslands hönd í Malmö á fimmtudaginn.
Afar ólíklegt er að lagið „Ég á líf“, sem er framlag Íslands til Eurovision í ár, muni vegna vel í keppninni samkvæmt helstu veðbönkum. Þá er ekki reiknað með því að lagið komist áfram upp úr undankeppninni á fimmtudag. Stafræni veðbankinn Paddy Power segir líkurnar á að Ísland vinni keppnina aðeins vera 1 á móti 150. Frændur okkar Danir eru aftur móti mjög sigurstranglegir, en þeirra líkur eru 4 á móti 5. Úkraína og Noregur þykja einnig líkleg til sigurs. Jónatan Garðarsson, fararstjóri íslenska hópsins í Malmö, segir móralinn góðan og Íslendingana ekki hafa miklar áhyggjur af spám veðbankanna. „Árlega fer fram kosning meðal blaðamannana og helstu Eurovision aðdáenda á keppnisstað. Samkvæmt þeirri kosningu erum við í sjöunda sæti í okkar riðli svo þetta lítur bara vel út. Þetta lið sem fylgist með keppninni ár eftir ár veit alveg hvað það syngur og þær spár eru mun marktækari en veðbankarnir.“Ekki endilega markmiðið að komast áfram Jónatan segist ekki hafa neinar áhyggjur af því að komast ekki áfram. „Það skiptir ekki máli. Markmiðið er að gera okkar besta og að Eyþór skili laginu frá sér af einlægni. Móralinn í hópnum er alveg frábær og allir mjög vel stemmdir. Æfingarnar hafa gengið eins og í sögu og margir hafa hrósað okkur fyrir að syngja á íslensku. Það eru óvenju mörg lönd sem syngja á sínu móðurmáli í ár, það er greinilega að komast aftur í tísku“, segir Jónatan sem er spenntur fyrir rennsli í kvöld.
Mest lesið Aldrei sagt söguna af Social Pete opinberlega Lífið Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur Lífið Nennti ekki að meika það Tónlist „Við flytjum aldrei héðan“ Lífið Kosningavökur flokkanna: Hótel, veislusalir og einn leynistaður Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni Lífið Flosi Eiríks selur 300 milljón króna einbýlishús Lífið Þau komust áfram í úrslit Eurovision Lífið Oddvitaáskorunin: Iðulega kallaður Lúlli laukur Lífið Stjörnufans hjá Birni á Edition Tónlist Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Samtalið alltaf hlýrra Hvað veistu um… Eurovision? Oddvitaáskorunin: Að læra á gítar efst á lista Oddvitaáskorunin: Gamall rokkhundur alinn upp í pönkinu Indverski dansinn dunaði á Hilton Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur Íslenskur Counter Strike-meistari fékk stjörnumóttökur í Kasakstan Oddvitaáskorunin: „Ég kom, ég sá að þetta meikaði engan sens“ Allt í járnum fyrir lokaþáttinn Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni Aldrei sagt söguna af Social Pete opinberlega Flosi Eiríks selur 300 milljón króna einbýlishús Oddvitaáskorunin: Iðulega kallaður Lúlli laukur Kosningavökur flokkanna: Hótel, veislusalir og einn leynistaður Oddvitaáskorunin: Kjartan, Tanni, Tannsteinn, Steini Þau komust áfram í úrslit Eurovision Oddvitaáskorunin: Strumpur svo lýsandi gælunafn Oddvitaáskorunin: Cheerios með sykri besti morgunmaturinn Oddvitaáskorunin: „Þoli ekki að ég sé ekki skurðlæknir“ Miðbæjarperla til sölu í litlu ævintýrahúsi Blóðug barátta á gryfjuboltamóti Erfiðasta þrautin hingað til Oddvitaáskorunin: Mælir ekki með að herma eftir morgunmatnum „Við flytjum aldrei héðan“ Oddvitar sameinuðust í „We are the world“ Tala við pabba sinn þvert á fullyrðingar slúðurmiðla Oddvitaáskorun: Mistök að byrja með manni með jeppadellu þó hún elski hann Hulda í hópi fjörutíu bestu undir fertugu Oddvitaáskorun: Mjög til í að vera smiður Borgaði 100 þúsund fyrir hárlokk úr Hauki Holm Sjá meira