Heppni að enginn slasaðist í Kjálkafirði Kristján Már Unnarsson skrifar 23. apríl 2013 18:31
Mildi þykir að ekki urðu slys á mönnum þegar stór skriða féll á Vestfjarðaveg í Kjálkafirði í dag. Stór grafa frá fyrirtækinu Suðurverki, sem þarna vinnur að vegagerð, lenti í skriðunni, en gröfustjórinn slapp án meiðsla. „Það var guðsmildi að ekki fór verr," sagði Gísli Eysteinsson, verkstjóri hjá Suðurverki. Undir það tekur Þórhallur Gestsson, starfsmaður Suðurverks: „Það var heppni að ekki varð slys á fólki," segir Þórhallur, sem tók meðfylgjandi myndir. Skriðan er rétt fyrir innan Litlanes og féll á svæði þar sem nokkrar vinnuvélar hafa verið að störfum. Skriðan fór upp á vélarhlíf Caterpillar-gröfu en gröfustjórinn hafði áður tekið eftir sprungu í jarðveginum. Gísli áætlar að skriðan sé um 70 metra breið og 30 metra þykk. Hún lokar Vestfjarðavegi en þetta er aðalleiðin til Patreksfjarðar og annarra byggða á sunnaverðum Vestfjörðum.Vinnuvélar Suðurverks sjást handan skriðunnar.Mynd/Þórhallur Gestsson.Vegagerðin telur ólíklegt að náist að opna veginn fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið. Vegna þessa fer Breiðafjarðarferjan Baldur aukaferð í fyrramálið, kl. 09:00 frá Stykkishólmi og kl. 12:00 frá Brjánslæk. Vilji menn aka lengri leiðina, um Ísafjörð og Djúp, bendir Vegagerðin á að fært er um Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Sjá meira