2000 sóttu um - Íslendingur komst áfram Ellý Ármanns skrifar 12. apríl 2013 12:15 "Skólinn er í Upper West Side í Manhattan í New York," segir Margaryta spurð hvar skólinn er staðsettur.
Margaryta Popova, 17 ára píanósnillingur frá Úkraínu, hefur búið hér á landi undanfarin fimm ár ásamt úkraínskri móður sinni og stjúpföður sem er íslenskur. Margaryta gerðist nýverið íslenskur ríkisborgari en hún hefur undanfarið stundað píanónám á IB-braut í Menntaskólanum í Hamrahlíð."Myndin er tekin eftir píanókeppni þar sem ég varð í öðru sæti. Á myndinni er ég og dómari í keppninni sem er prófessor frá Moscow Conservatory," segir Margaryta spurð um minni myndina.Í mars fékk Margaryta inngöngu í virtan skóla í New York, Mannes College Of Music. Það var hinsvegar ekki auðvelt fyrir hana að komast inn því fyrst þreytti hún nokkur inntökupróf ásamt 2000 öðrum píanóleikurum og viti menn Margaryta hefur í haust píanónám í skólanum til BA prófs.Þreytti fyrst próf á Íslandi"Fyrst tók ég hæfnispróf hér á Íslandi sem ég þurfti að standast til þess að komast í áheyrnarprufurnar í New York. 2000 píanóleikarar alls staðar úr heiminum tóku þetta hæfnispróf," útskýrir Margaryta.Komst síðan áfram í 800 manna úrtakið "Ég komst áfram í 800 manna úrtakið og fór svo til New York í mars og tók próf í tónfræði, solfeggio og ensku. Síðan fór ég í nokkur viðtöl þar sem ég var spurð um námið mitt á Íslandi og margt fleira en mikilvægast var auðvitað þegar ég spilaði á píanó fyrir dómarana. Dómararnir voru mjög áhugasamir um Ísland, þvi það hafa ekki margir Íslendingar sótt um skólavist í þessum skóla."Svo fékk hún inngöngu í skólann "Þetta var mjög erfitt en líka gaman. Mér finnst ennþá ótrulegt að ég hafi verið ein af þeim 30 umsækjendum sem voru valdir úr 800 manna hópnum sem þreytti inntökuprófið."Við hittum Margarytu í fyrra og fengum hana til að spila á píanóið fyrir okkur.Elskar ÍslandHvernig líkar þér að búa á Íslandi? "Mér finnst það yndislegt. Ég elska að vera hér. Alltaf ef ég er erlendis og einhver spyr mig hvaðan ég sé, segi ég bara að ég sé frá Íslandi. Ég er stolt af Íslandi. Landið er mjög einstakt og það hefur sinn eigin stíl bæði í tónlist og tísku og fólk er svo áhugavert. Ungmenni eru mjög hæfileikarík hér," segir þesssi hæfileikaríka stúlka.16 ára píanósnillingur búsettur á Íslandi (hér má sjá hana spila á píanó).Dragðu Tarotspil dagsins hér.Margaryta byrjaði ung að æfa sig á píanó. Æfingarnar hafa heldur betur skilað sér.
Mest lesið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Lífið Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lífið Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Lífið Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt Lífið Fleiri fréttir Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins „Lítið ömmugull á leiðinni“ hjá Siggu Lund Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Langömmulán hjá Eddu Björgvins Sjá meira