Grænn apríl fer af stað 3. apríl 2013 11:00 Ingibjörg Gréta Gísladótti og Guðrún Bergmann, verkefnastjórar Græns apríl. Mynd/Pjetur
Grænn apríl er umhverfisátak sem hefur vaxið og þróast undanfarin ár og er nú ýtt úr vör í þriðja sinn. Því er fyrst og fremst beint að því að auka meðvitund fólks um hvað það getur gert til að draga úr umhverfisáhrifum. Aðaláherslan hefur því verið á að hvetja alla þá sem eru með vöru, þekkingu eða þjónustu sem er græn og umhverfisvæn að kynna sig í þessum mánuði. "Í ár erum við í samstarfi við 365 miðla um þessa kynningu og mun blaðið Fólk, sem er í miðju Fréttablaðsins, til dæmis vera "grænt" allan mánuðinn," segir Guðrún Bergmann, annar verkefnisstjóra Græns apríl. Auk umfjöllunar um verkefnið í miðlum 365, munu verkefnisstjórar Græns apríl halda úti Facebook-síðu og vefsíðunni graennapril.is til að færa fólki fréttir af því sem er grænt og umhverfisvænt. "Í samstarfi við Reykjavíkurborg verður einnig sérstakt hreinsunarátak 20. apríl undir heitinu "Einn svartur ruslapoki" en í fyrra tókst slíkt átak sérlega vel og bætti ásýnd borgarinnar," segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, sem er hinn verkefnisstjóri Græns Apríl. "Olís, sem er einn af samstarfsaðilum Græns apríl, mun gefa öllum sem vilja poka til að fylla og borgaryfirvöld munu síðan sjá um að sækja þá." Birting loftslagsbreytinganna Sá dagur sem Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint sem Dag Jarðar er 22. apríl. Meginþemað tengt honum í ár er birting loftslagsbreytinganna. Grænn apríl mun standa fyrir viðburði sem tengist þessum degi í Háskólabíói 21. apríl frá 15-17 þar sem fjallað verður um það hvar þessi birting kemur fram hér á landi. "Þar verður bæði fræðsla og skemmtun því við blöndum saman stuttum erindum, tónlist og skemmtiatriðum," segir Guðrún. Aprílskógar 2013 "Ein besta leiðin til að binda koltvísýringsmengun er í gegnum trjágróður. Þess vegna ákváðum við að hrinda af stað söfnuninni Aprílskógar 2013. Stefnan er að safna fjármunum fyrir bændaskóga á Austurlandi en jafnframt að safna fyrir trjáplöntum til að planta í sérstakan Aprílskóg í Skorradal. Söfnunin verður í gangi allan aprílmánuð," segir Ingibjörg Gréta.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira