Lífið

Femínismi getur verið öfgafullt orð

Söngkonan Beyonce prýðir forsíðu maíheftis breska Vogue. Hún segist ekki þurfa að setja neinn stimpil á sjálfa sig nema þann stimpil að hún sé kona sem elskar að vera kona.

Aðspurð hvort hún sé femínisti stendur ekki á svörunum hjá okkar konu.

Fönguleg á forsíðunni.
"Það orð getur verið mjög öfgafullt. En ég held að ég sé nútímafemínisti. Ég trúi á jafnrétti. Af hverju þarf maður að velja hvernig kona maður er? Af hverju þarf maður að setja stimpil á sjálfan sig? Ég er bara kona sem elskar að vera kona," segir Beyonce.

Skemmtileg mynd.
Söngkonan hefur verið gift rapparanum Jay-Z, sem heitir réttu nafni Shawn Carter, í fjögur ár og eiga þau dótturina Blue Ivy saman.

Ástfangin hjón.
"Frú Carter er sú sem ég er en ég er óttalausari en ég hef nokkurn tímann verið. En ég er hamingjusamlega gift. Ég elska eiginmann minn."

Í sveiflu á Ofurskálinni.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.