Lífið

Eru Of Monsters and Men búin að missa það?

Myndband af íslensku hljómsveitinni Of Monsters and Men fer nú eins og eldur um sinu á samskiptamiðlinum Facebook. Fjölmargir hafa deilt því á síðum sínum í dag.

Þar hefur einhver spéfugl tekið sig til og sungið og spilað lagið Little talks upp á nýtt, og sett yfir myndband sem tekið var á tónleikum með sveitinni.

Það er engu líkara en krakkarnir séu búin að gleyma því hvernig á að syngja og spila á hljóðfæri. En sem betur fer er svo ekki, og er einungis um grín að ræða.

Orð eru óþörf en myndbandið er sprenghlæilegt.

Myndbandið má sjá hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.