35 kílóum léttari Kolbrún Pálína Helgadóttir skrifar 28. mars 2013 10:15 MYNDIR/Ozzo og einkasafn Lilju
Fyrir sléttum fjórum árum fékk Lilja Ingvadóttir nóg af eigin líkama og hugarástandi og ákvað að taka heilsuna föstum tökum. Í dag, 35 kílóum léttari og í betra andlegu jafnvægi, stígur hún á svið og keppir í fitness. Hún er einnig nýbökuð amma og hefur því margt til að vera þakklát fyrir.Hverjar voru helstu breytingarnar sem þú gerðir á lífi þínu og voru þær þér erfiðar? Mesta breytingin var að setja sjálfa mig í forgang og að skilja það að maður þarf að rækta sjálfan sig og setja sig í fyrsta sæti til að geta gefið af sér til annarra. Að tíminn minn sé jafn dýrmætur og annarra, og það er í lagi að segja nei. Ég get verið svo mikil já-manneskja, þannig að þetta hefur reynst mér erfitt á köflum. En ég er að læra að bera meiri virðingu fyrir sjálfri mér.Hefurðu haldið stífum takti síðan eða hafa komið einhver bakslög? Ég hef haldið stífum takti og fundið mjög gott jafnvægi. Ég hef ekki misst úr æfingu í fjögur ár og hef verið í þjálfun hjá Garðari allan þann tíma. Persónulega hefur það verið nauðsynlegt fyrir mig að hafa einhvern sem heldur mér við efnið og hristir upp í æfingunum og mataræðinu reglulega. Það kemur í veg fyrir leiða. Svo er auðvitað bara frábært að vera í þessum skemmtilega félagsskap sem ríkir í Sporthúsinu.Hver er heildarárangurinn frá upphafi átaks og þar til í dag? Ég er búin að missa 35 kíló, en ég missti fyrstu 32 kílóin á fyrsta árinu. Síðan þá hef ég verið að móta líkamann, bæta á mig vöðvamassa og unnið í því að ná fituprósentunni niður úr rúmum 40% niður í íþróttaform, sem er 12-15%. En ég myndi segja að væri búin að missa um það bil eitt þúsund kíló af sálinni, sem er fyrir mestu.Hver er helsti ávinningur þessa breytta lífsstíls fyrir utan augljósa útlitsbreytingu? Andleg og líkamleg heilsa. Að geta skoppað um eins og táningur í frábæru formi og hafa enga verki í líkamanum. Að vera ánægð í eigin skinni og að hafa endurheimt trúna á sjálfri mér. Mér finnst ég geta sigrað heiminn og brosi alla daga.Þú ert að fara að keppa í Fitness kvenna, 35 ára plús, sem fram fer í dag. Stefndirðu allan tímann á það að enda á sviði eða þróaðist þetta bara svona? Þetta einfaldlega þróaðist. Eftir þrjú ár í þjálfun fannst mér kominn tími á nýtt markmið. Það er nefnilega himinn og haf á milli þess að vera í góðu formi og í toppformi - og ég vildi koma mér í toppform. Ég þurfti góða áskorun til að koma þér á þann áfangastað og fitness var einfaldlega málið. Eftir smá umhugsun ákvað ég að kýla á þetta. Það er nú svolítið skemmtilegt að segja frá því að þegar ég stíg á svið í Háskólabíó verða fjögur ár upp á dag frá því að ég breytti yfir þennan nýja lífsstíl.Hvað hefur reynst þér erfiðast við þennan undirbúning? Fórnirnar sem snúa að fjölskyldunni og vinunum. Í svona undirbúningi sleppir maður ferðalögum, skemmtunum og öllu sem að getur raskað rútínunni. Þetta verkefni hefur algjöran forgang á meðan á því stendur og því hefur oft reynst erfitt að hafa ekki tíma fyrir fólkið sitt. Sjá viðtalið við Lilju í heild sinni - hér.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira