Hefur þróað hina ýmsu rétti upp úr kóki Kolbrún Pálina skrifar 1. febrúar 2013 13:15 María Sigrún fer óhefðbundar leiðir í eldhúsinu.
Fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir hefur unun af því að baka og elda. Hún er óhrædd við að prófa nýjar leiðir og gera tilraunir. Hér má sjá afrakstur einnar þeirra sem er örlítið óhefðbundin en syndsamlega góð að sögn Maríu. „Hversu oft hefur tveggja lítra kókflöskur dagað uppi goslausar í ískápunum ykkar eftir að það er rétt búið að fá sér einu sinni úr þeim? Ég hef sennilega hellt tugum lítra í vaskinn í gegnum tíðina og alltaf finnst mér það mikil synd. Ég hef oft hugsað um hvort hægt væri að endurlífga kók með sodastream-tæki en efast um að það sé hægt. Reynslusögur eru þó vel þegnar." Í eitt af þessum skiptum sem María var að hella í vaskinn hugsaði hún hvort ekki væri hægt að nýta flatt kók með einhverjum hætti. „Síðustu misserin hef ég eldað talsvert upp úr kóki og þróað hina ýmsu rétti. Árangurinn hefur komið mér skemmtilega á óvart. Ég veit að þetta er svo sem ekki það heilsusamlegasta í heimi en trúið mér, þetta er syndsamlega gott! Rétturinn sem ég deili með ykkur núna er tilvalinn þegar þið eruð með gesti í heimsókn því það er í fínu lagi að laga súpuna mörgum klukkustundum áður en gestirnir koma og hita hana svo bara upp rétt í lokin, geymið bara appelsínuna og ferska kóríanderið þar til alveg í lokin. Súpan verður bara betri fyrir vikið."Kóknautagúllassúpa Maríu með taílensku ívafi2 rauðir chili (smátt skornir og fræjunum hent)4 pressuð hvítlauksrif2 cm ferskur rifinn engifer2 msk. olía1 kg nautagúllas2 l Coca Cola u.þ.b. (má vera goslaust og ef þið eruð að nota kókflösku sem er ekki full er hægt að nota púðursykur og vatn í staðinn fyrir það sem upp á vantar af kókinu. Ég geri það oftast. Það má líka nota flatt appelsín með, ég gerði það núna eftir jólin.2 msk. fiskisósa (Thai choice)1 tsk. sesamolía1 msk. nautakraftur frá Oscar2 laukar skornir í hálfhringi1 poki saltaðar og ristaðar kasjúhnetur1 pakki ferskir Flúðasveppir (skornir í fernt)1 búnt vorlaukur skorinn í litlar sneiðarSalt og pipar eftir smekkSafi úr tveimur appelsínum1 tsk. fínt rifinn appelsínubörkur (bara þetta appelsínugula, ekki þetta hvíta)Ferskt kóríanderSoðnar hrísgrjónanúðlurAðferð Takið stóran pott. Setjið á fullan hita og setjið olíu, chili, engifer og hvítlauk í og hrærið. Setjið svo allt kjötið í pottinn og veltið þar til það hefur allt lokast og er orðið ljósbrúnt. Hellið þá kókinu yfir og látið suðuna koma upp og sjóðið svo í 1 klst. Þá setjið þið restina (allt nema kóríanderið og appelsínuna) út í og látið sjóða í 7 mínútur og smakkið til. Rétturinn er svo borinn fram í súpuskálum. Setjið soðnu hrísgrjónanúðlurnar á botninn í skálarnar, því næst gúllassúpuna og svo klippið þið ferskt kóríander yfir.
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Sjá meira