Stallone og Schwarzenegger malaðir í miðasölunni Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 3. febrúar 2013 20:29 Gömlu hetjurnar riðu ekki feitum hesti frá miðasölunni.
Kvikmyndin Bullet to the Head, með vöðvatröllinu Sylvester Stallone í aðalhlutverki, halaði ekki inn nema 4.5 milljónir Bandaríkjadala um helgina í kvikmyndahúsum vestra. Þá á að sjálfsögðu eftir að taka sunnudagskvöld með í reikninginn, en mikið þarf að ganga á til að gengi myndarinnar teljist annað en afleitt, því myndin kostaði 55 milljónir í framleiðslu. Hún er ekki nema sjötta mest sótta mynd helgarinnar, og eru það meðal annars systkinin Hans og Gréta sem eru að mala hinn ítalska fola. Svipaða sögu er að segja af vini hans, Arnold Schwarzenegger, en hann sneri aftur á hvíta tjaldið um þarsíðustu helgi með myndinni The Last Stand. Þar á bæ komu ekki nema 6.3 milljónir í kassann um frumsýningarhelgina, og enn er langt í land ef myndin á að ná upp í 45 milljón dollara framleiðslukostnað sinn. Þetta er sérkennilegt í ljósi þess að hér eru á ferðinni tveir af gullkálfum Hollywood níunda og tíunda áratugarins, en auðvitað er til í dæminu að búntin tvö séu einfaldlega orðin of gömul til þess að höfða til þess aldurshóps sem stundar kvikmyndahúsin af sem mestum móð. Þeirra gamli aðdáendahópur er á miðjum aldri í dag og heimakærari en áður. Myndirnar tvær hafa fengið sæmilega dóma gagnrýnenda, Schwarzenegger-myndin þó heldur betri en mynd Stallone. Það er þó ekki öll von úti enn, og líkur á að hér hafi tilviljun ein valdið því að myndir þeirra beggja floppuðu nánast samtímis. Ekki er nema hálft ár síðan kvikmyndin The Expendables 2 malaði gull og þrefaldaði framleiðslukostnað sinn, en báðir leikararnir komu fram í þeirri mynd. Þar nutu þeir liðsinnis yngri leikara og má vera að það hafi haft sitthvað að segja. Það er óskandi að þessir hraustu harðjaxlar nái sér aftur á strik því þeir eru ekki nema hálfsjötugir og gætu því átt nóg eftir.
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira