Lífið

Sjálfsöryggi óháð líkamsþyngd

Ellý Ármanns skrifar
Mynd/instagram
Fjölmiðlakonan Sigga Lund sem heldur úti vefsíðunni Siggalund.is undirbýr sinn fyrsta viðburð sem er örnámskeið sem ber titilinn Sjálfstraust óháð likamsþyngd. Líkamsvirðing - sjálfsvirðing; Frá átökum og öfgum yfir í vellíðan, virðingu og sátt.

Fríða Guðmundsdóttir, Sigga Lund og Anna Sigurðardóttir/instagram.
"Við ætlum að kenna konum að lifa í frelsi og fara að njóta. Að vera í sátt og hafa sjálfsöryggi óháð líkamsþyngd. Það ríkti mikil eftirvænting þegar við vorum að taka promo myndatökur í kvöld," segir Sigga spurð um Instagram myndina sem sjá má af henni ásamt Fríðu og Önnu.

Örnámskeiðið sem Sigga vinnur í samvinnu við sálfræðinga og fagaðila verður í Salnum í Kópavogi þann 19. febrúar næstkomandi.

Siggalund.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.