Upplýsingar sem er erfitt að meta til fjár Kolbrún Pálína skrifar 25. janúar 2013 10:00 Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hefur sett saman hnitmiðað námskeið til að hjálpa konum með viðskiptahugmyndir við að koma sér af stað.
Konur til athafna er nýtt námskeið þar sem metsöluhöfundurinn og framkvæmdastjóri Gyðju Collection, Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, oftast kennd við Gyðju, kennir hagnýtar aðferðir í markaðssetningu, sölu og framleiðslu á vörum og þjónustu.Námskeiðið svar við fyrirspurnumMarkmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu og hæfni þátttakenda við að framleiða, selja og markaðssetja vörur sínar og þjónustu hvort sem viðskiptahugmyndirnar eru á algjöru frumstigi eða þegar byrjaðar í rekstri. „Ég fæ orðið margar fyrirspurnum frá konum sem hafa hug á að hefja framleiðslu og sölu á vörum og óska eftir að fá aðstoð mína og ráðleggingar í þeim efnum. Ég setti því saman hnitmiðað helgarnámskeið þar sem ég mun fara vel yfir „trikkin" í framleiðslu, sölu og markaðssetningu og miðla minni reynslu sem ég hef fengið við uppbygginguna á Gyðju." Að auki mun Sigrún Lilja kenna persónulega markmiðasetningu, framkomu, fundarstjórn og leiðir til að byggja upp sjálfstraust en það telur hún nauðsynlegan þátt til að ná árangri.Með áralanga reynslu Sigrún hefur langa reynslu af framleiðslu, allt frá því að hún starfaði í fjölskyldufyrirtækinu Tanna auglýsingavörum og svo núna eftir að hún hóf rekstur sjálf. „Ég veit orðið sitt lítið af hverju um það hvernig best er að finna framleiðendur og eiga við þá góð samskipti svo að framleiðsluferlið gangi vel fyrir sig. „Með námskeiðinu vil ég hjálpa konum að koma í veg fyrir að þær eyði nokkrum árum í að reka sig á eins og gengur og gerist í raunveruleikanum."Strákarnir líka áhugasamirSigrún segir að það hefði hjálpað sér mikið á sínum tíma að fá allar þær upplýsingar sem hún ætlar nú að miðla til annarra á silfurfati. „Þetta eru upplýsingar sem er erfitt að meta til fjár og ég geri mér grein fyrir því en mig langar að leggja mitt af mörkum við að virkja og aðstoða hugmyndaríkar og sniðugar konur og koma þeim af stað." Eftir að Sigrún setti upp Facebook-síðu fyrir námskeiðið, facebook.com/konurtilathafna, fékk hún fjöldann allan af áskorunum frá herramönnum sem langar til að koma á námskeiðið. „Ég hef því líka sett upp forskráningu á annað námskeið fyrir bæði kynin sem ég stefni á að halda á næstu mánuðum," segir Sigrún Lilja að lokum. Námskeiðið Konur til athafna fer fram helgina 9.-10. febrúar næstkomandi. Skráning og allar nánari upplýsingar fara fram á Facebook-síðu námskeiðsins, Konur til athafna.
Mest lesið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Lífið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Tíska og hönnun „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Höguðu sér vel á árshátíð Haga Lífið Fleiri fréttir Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sjá meira