Gekk 48 kílómetra og færði starfsfólki Landspítalans leikhúsmiða Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2013 06:45 Hilmar fyrir miðju, með honum eru Baldvin Haukur Júlíusson, bróðir Hilmars, og Haraldur Haraldsson félagi hans. Mynd/Víkurfréttir
Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri Víkurfrétta, gekk frá Keflavík á Landspítalann í Fossvogi í gær og færði starfsfólki deildarinnar A-7 leikhúsmiða. Ástæðan fyrir þessum gjörningi er þakklæti Hilmars í garð hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem önnuðust hann þegar hann lá á deildinni fyrir þremur mánuðum síðan. „Ég er með sykursýki 2 og í byrjun júní fékk ég blóðeitrun og varð alvarlega veikur. Ég var næstum búinn að drepa mig á óhollustu og hugsaði ekkert um líkamann." Hilmar lá á deildinni í þrjár vikur og vildi þakka starfsfólkinu fyrir að sinna honum allan sólarhringinn og færði þeim fimmtíu leikhúsmiða. „Það var klappað fyrir mér þegar ég kom og bauð þeim í leikhús enda var starfsfólkið ánægt að fá viðurkenningu fyrir sitt góða starf," segir Hilmar. Hilmar gekk 48 kílómetra og tók gangan allan daginn. „Ég vildi ganga þessa leið til þess að fagna breyttum lífsstíl. Eftir að ég útskrifaðist af spítalanum tók ég mig í gegn, ég er búinn að missa 26 kíló og lifi miklu betra lífi í dag."Hilmar færði sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum á deild A-7 fimmtíu leikhúsmiðaMynd/Úr einkasafniÁ morgun mun Hilmar einnig færa sextíu starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja leikhúsmiða. Hann lá þar inni eftir dvölina á Landspítalanum. Samtals gefur hann 110 leikhúsmiða og þeir kosta sitt. "Ég er búinn að fjalla mikið um breyttan og bættan lífsstíl á Facebook-síðu minni og hef reynt að vekja fólk til umhugsunar um eigin heilsu. Þegar ég ákvað að sýna starfsfólkinu þakklætisvott efndi ég til söfnunar á síðunni minni og fékk mjög góð viðbrögð frá vinum mínum sem gerðu þetta mögulegt," segir Hilmar. Hilmar var að vonum þreyttur í gærkvöldi eftir gönguna miklu. Gangan tók samtals átta og hálfan tíma en hann fékk góðan félagsskap á leiðinni. "Bróðir minn labbaði alla leiðina með mér og svo voru margir sem gengu nokkra kílómetra, bút og bút af leiðinni. Við fengum dæmigert íslenskt veður, allar tegundir af veðri sem var hressandi," segir Hilmar.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfinn Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fleiri fréttir Flugstjórinn þögull sem gröfinn Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Sjá meira