Verkalýðsforingjar í hár saman vegna hvalaskoðunarfólks Heimir Már Pétursson skrifar 17. ágúst 2013 17:20 Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar Mynd / Völundur Jónsson
Framsýn stéttarfélag á Húsavík vísar á bug ásökunum Farmanna og fiskimannasambandsins og Félags vélstjóra og málmtæknimanna í tengslum við nýgerðan kjarasamning Framsýnar við starfsfólk hvalaskoðunarfyrirtækja. En í yfirlýsingu Farmannasambandsins og Félags vélstjóra á fimmtudag lýsa samtökin yfir undrun sinni á nýgerðum kjarasamningi Framsýnar á Húsavík vegna starfsmanna hjá hvalaskoðunarfyrirtækjum á staðnum. Fullyrða samtökin að við gerð þessa samnings hafi af hálfu Samtaka Atvinnulífsins ekki verið samið fyrir vélstjóra og skipstjórnarmenn. Aðalsteinn Baldursson formaður Framsýnar segir að þessi stéttarfélög ættu að einbeita sér að því að semja fyrir sína félagsmenn í stað þess að gagnrýna þá sem þó hafi samið. „Þarna eru þeir með mjög alvarlegar aðdróttanir í okkar garð og saka okkur um að hafa ekki samið vel fyrir okkar fólk og við vísum því til föðurhúsanna,“ segir Aðalsteinn. Starfsfólk hvalaskoðunarfyrirtækja á landsvísu hafi verið án samninga og kallað eftir því að samningar yrðu gerðir og unnið hafi verið að þessum samningi Framsýnar í tvö ár. Það komi því úr hörðustu átt þegar félagar í verkalýðshreyfingunni gagnrýni þessa samninga. „Já, það er mjög sérstakt. Það er ágætt símasamband á Íslandi og ég skil ekkert í þeim að hafa ekki hringt til mín og rætt þessi mál og fengið útskýringar á öllum þeim þáttum sem þeir eru að saka okkur um, sem er bara rugl. Þá hefðu þeir ekki þurft að verða sér til skammar með þessari yfirlýsingu,“ segir Aðalsteinn Baldursson.Mynd/Gentle Giants
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira