Eyddi tveimur árum í gerð útsaumsteppis Freyr Bjarnason skrifar 4. apríl 2013 09:45 Bergþór Pálsson hjá útsaumsteppinu sem hann hefur nýlokið við. fréttablaðið/stefán „
Það er rosalega gaman að hafa gert þetta og líka að hafa lært tvennt í leiðinni. Að ég hef meiri tíma en ég hélt og ég lærði aðferð til að anda," segir söngvarinn Bergþór Pálsson. Hann lauk nýverið við útsaumsteppi sem hann byrjaði að sauma fyrir rúmum tveimur árum. Um er að ræða endurgerð aldagamals riddarateppis sem er á annarri hæð Þjóðminjasafnsins. „Ég var oft búinn að horfa á þetta í bókinni hans Kristjáns Eldjárns sem heitir Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Ég var búinn að dást að þessu frá því að ég var lítill og mér fannst furðulegt að fólk skyldi hafa tíma til að gera þetta í kringum 1700. Þá hafði það ekki þessa fínu lampa sem ég hef aðgang að," segir Bergþór, sem var nálægt því að fallast hendur í byrjun. „Þegar ég var búinn með um það bil einn fersentímetra hugsaði ég með mér að þetta yrði aldrei búið. Ég hef alltaf haldið því fram að ég sé uppteknasti maður á Íslandi en svo uppgötvaði ég hvað við eigum í raun margar mínútur í sólarhringnum sem við notum ekki." Bergþór segist vera mikill áhugamaður um öndun og ákvað að nota útsauminn sem öndunaræfingu. „Þarna sá ég að það passaði að sauma eitt spor og anda inn og annað spor og anda út. Þá fann ég súrefnisnæringuna og kyrrðina færast yfir mig." Hann sér ekki eftir tímanum sem fór í teppið. „Það var rosalega gaman að sjá þetta fara upp á vegg."
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira