Innlent

Nýr biskup tekinn við lyklavöldum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Agnes tók við lyklavöldum af Karli Sigurbjörnssyni í Dómkirkjunni í dag.
Agnes tók við lyklavöldum af Karli Sigurbjörnssyni í Dómkirkjunni í dag. mynd/ gva.
Prestastefnu lauk í dag með athöfn í Dómkirkjunni. Að lokinni guðþjónustu og altarisgöngu afhenti Karl Sigurbjörnsson,fráfarandi biskup Íslands, nývígðum biskupi, Agnesi Sigurðardóttur, lykla embættisins. Agnes biskup mun formlega hefja störf á biskupsstofu á mánudaginn næstkomandi, en hún var vígð í embættið síðastliðinn sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×