Viðræður um verksamning hófust í dag Kristján Már Unnarsson skrifar 27. júní 2012 18:15 Gangamunninn Akureyrarmegin mun blasa við bæjarbúum. Bílaumferð í gegn hefst líklega árið 2016. Mynd/Baldur Hrafnkell Jónsson. „
Ég met það þannig að verkframkvæmdir, ef allt gengur eftir, gætu verið að hefjast í byrjun september," segir Karl Þráinsson, forstjóri ÍAV, eftir fyrsta fund með Vegagerðinni í dag um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga. Karl býst við að einhverjar vikur taki að ganga frá samningum, því verksamningurinn er ekki sá eini. Hlutafélagið Vaðlaheiðargöng þarf að gera lánasamning við fjármálaráðuneytið og síðan að semja við Vegagerðina um að halda utan um verkefnið, en hún mun væntanlega koma fram sem fulltrúi verkkaupa gagnvart verktökunum, ÍAV og Marti. Þegar tilboð voru opnuð í október í haust var miðað við að göngin yrðu tilbúin sumarið 2015, en þá vonuðust menn til að framkvæmdir kæmust í gang um síðustu áramót. Andstaða á Alþingi og innan ríkisstjórnar hélt málinu hins vegar í óvissu allt þar til fyrir tveimur vikum að skýr meirihluti fékkst á Alþingi fyrir því að ríkið lánaði 8,7 milljarða króna til verksins. Forstjóri ÍAV efast um að hægt verði að standa við upphaflega áætlun um verklok og telur raunhæfara að göngin verði tilbúin sumarið 2016. Þetta sé þó spurning um hvað verkkaupinn vill, og hvort hann vilji láta vinna verkið hraðar, en það muni skýrast í þeim viðræðum sem nú eru hafnar. Karl vonast til að fyrsta sprenging fyrir göngunum geti orðið í desember, - ef komið verði nærri jólum gæti hún þó dregist fram yfir áramót.
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Fara í aðgerðir fáist ekki svör Innlent Handtekinn vegna stunguárásarinnar Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Þrír í haldi vegna stunguárásar í miðbænum Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent