Innlent

Náttfari missti afl

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá Húsavík.
Frá Húsavík. mynd/ vilhelm.
Skipverjar á hvalaskoðunarskipinu Náttfara urðu varir við gangtruflanir í skipinu rétt fyrir tvö í dag og ákváðu að drepa á aðalvél skipsins. Aflandsvindur var og engin hætta á ferð og því ákveðið að taka bátinn í tog af öðrum bát félagsins. Til að gæta fyllsta öryggis var Björgunarsveitinni Garðari gert viðvart og fór hún á vettvang á hraðbát.

Björgunarsveitin bauðst til að ferja farþega Náttfara í land, samtals 9 manns og var ákvörðun tekin um að þiggja það þar sem öðrum kosti hefði orðið veruleg seinkun á heimkomu farþega. Um klukkan hálffjögur voru farþegar komnir í höfn á Húsavík, að því er fram kemur í tilkynningu frá. Skömmu eftir að farþegar yfirgáfu Náttfara, hafði áhöfn tekist að átta sig á ástæðum gangtruflananna og leysa vandamálið og sigldi Náttfari svo fyrir eigin vélarafli til hafnar.

Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar, segir í tilkynningu vegna atviksins að áður en gagntruflanir hófust, hafi hvalaskoðun gengið með eindæmum vel, hnúfubakur hafi sést sem stökk margsinnis einungis fáa metra frá bátshlið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×