Útgefandi símaskrárinnar býður fólki að líma yfir Egil 2. febrúar 2012 10:00 Fyrirtækið Já hefur útbúið tvær tegundir af límmiðum til að fela forsíðufyrirsætuna Egil "Gillzenegger“ af forsíðunni og eru þeir í boði fyrir þá sem þess óska. Fréttablaðið/vilhelm „
Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska," segir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já. Já hefur látið hanna límmiða til að líma yfir forsíðu símaskrár síðasta árs en á henni er mynd af Agli Einarssyni og fimleikastúlkum úr Gerplu. Tvær gerðir af límmiðum eru í boði fyrir þá sem vilja fjarlægja vilja Egil af forsíðunni. Annars vegar er límmiði með mynd af stúlkunum úr Gerplu og hins vegar er límmiði sem lítur út eins og búið sé að rífa Egil af forsíðunni. Aðspurð segist Guðrún María ekki vilja tjá sig nánar um ákvörðunina um límmiðana. „Þeir eru hins vegar til og í boði fyrir alla þá sem vilja," segir hún. Hún vill ekki tjá sig um hversu margir hafa sett sig í samband við fyrirtækið og óskað eftir lausnum á borð við límmiðana. Egill hefur verið kærður í tvígang fyrir kynferðisbrot á síðustu mánuðum en niðurstaða í málunum liggur ekki fyrir. Önnur kæran, sem er á hendur honum og kærustu hans, var á dögunum send frá Ríkissaksóknara til frekari rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en hin kæran er ennþá til rannsóknar. Ákvörðun Já að láta Egil um ritstjórn símaskrárinnar árið 2011 var umdeild á sínum tíma. Ný símaskrá kemur út í maí og að þessu sinni er það Borgarleikhúsið sem sér um að myndskreyta hana. Hægt er að nálgast límmiðana í höfuðstöðvum Já í Álfheimum. alfrun@frettabladid.is
Tengdar fréttir Hægt að hylja mynd af Agli Já hefur látið hanna og framleiða límmiða til að líma á forsíðu símaskrár síðasta árs. Á forsíðunni er mynd af Agli Einarssyni og fimleikastúlkum í Gerplu. Tilgangur límmiðanna er að gera fólki kleift að líma yfir Egil Einarsson. "Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska,“ staðfestir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já.Egill hefur verið kærður í tvígang fyrir kynferðisbrot á síðustu mánuðum en niðurstaða í málunum liggur ekki fyrir. 2. febrúar 2012 07:00 Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Sjá meira
Hægt að hylja mynd af Agli Já hefur látið hanna og framleiða límmiða til að líma á forsíðu símaskrár síðasta árs. Á forsíðunni er mynd af Agli Einarssyni og fimleikastúlkum í Gerplu. Tilgangur límmiðanna er að gera fólki kleift að líma yfir Egil Einarsson. "Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska,“ staðfestir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já.Egill hefur verið kærður í tvígang fyrir kynferðisbrot á síðustu mánuðum en niðurstaða í málunum liggur ekki fyrir. 2. febrúar 2012 07:00