Vökum yfir líðan barna okkar 13. janúar 2012 09:00 Yfirmenn göngudeildar BUGL, þær Linda Kristmundsdóttir hjúkrunardeildarstjóri og Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir yfirlæknir. fréttablaðið/stefán „
Það hefur ekkert foreldri meðfædda vitneskju um hvernig bregðast eigi við áfallastreitu barna, en það er okkar hlutverk að miðla, fræða og kenna, og það gerum við með ráðstefnum sem þessari og því að setja inn á heimasíðu okkar gagnlegar upplýsingar sem foreldrar og forráðamenn barna geta nýtt sér,“ segir Linda Kristmundsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). Stofnunin stendur fyrir árlegri ráðstefnu sinni í Laugardalshöll á morgun, en viðfangsefnið nú ber yfirskriftina Börn og áföll. „Við munum ræða áföll barna í víðri skilgreiningu,“ útskýrir Linda. „Aðalfyrirlesari verður bandaríski sálfræðingurinn Robbie Alder-Tapia sem hefur sérhæft sig í áfallastreitumeðferð barna og verið lærimeistari okkar á BUGL í sama málaflokki. Annað áhugavert erindi er um áfallamiðaða hugræna atferlismeðferð fyrir börn með áfallastreitu, en báðar þessar meðferðir eru gagnreyndar, vísindalega rannsakaðar og kunnar fyrir að skila árangri,“ upplýsir Linda. Hún segir ráðstefnuna einkum höfða til starfsfólks í breiðri þjónustu við börn og unglinga, bæði í heilbrigðisstétt og skólakerfinu. „Nú í fyrsta sinn verðum við með málstofur þar sem við fáum til liðs við okkur háskólanema- og kennara sem rannsaka fjölbreytt málefni sem tengjast börnum, eins og einelti og ofbeldi í fjölskyldum. Með því tengjum við loks saman rannsóknarsamfélagið og heilbrigðisstéttina, sem er verulega gagnlegt,“ segir Linda. BUGL hefur umsjón með sérhæfðustu og erfiðustu málum sem snúa að geðheilbrigði barna og unglinga. „Áfalli barns fylgir ekki endilega áfallastreita eða áfallastreituröskun, sem er sjúkdómsgreint viðvarandi kvíðaástand í kjölfar áfalls. Áfall getur verið einn yfirþyrmandi atburður, en líka margir; allt frá slysi upp í langvarandi ofbeldi. Áfall fer eftir eðli atburða, eins og þegar barn er króað af og barið, þá upplifir það að lífi þess sé ógnað, sem er að sjálfsögðu áfall og getur þróað einkenni áfallastreitu,“ útskýrir Linda og nefnir algeng einkenni áfallastreituröskunar. „Þá er barnið órólegt, kvíðið, með svefntruflanir, einbeitingarskort, forðast ákveðnar aðstæður og endurupplifir atburðinn í jafnvel hvaða aðstæðum sem er. Áfallinu fylgir því talsverð röskun á lífi barns.“ Linda segir starfsfólk BUGL hafa undanfarin tvö ár lagt mikla vinnu í að þekkja úr og meðhöndla börn sem hafa upplifað áföll. „Forvarnir eru þó alltaf besta vörnin og því þurfa foreldrar að vera í eins góðu sambandi við börn sín og þeir geta. Þeir þurfa að vera vakandi yfir líðan þeirra og hegðunarmynstri, og í það góðu sambandi að barnið eigi auðvelt með að ræða allt sem á því hvílir. Þá verða foreldrar að þekkja daglegar aðstæður barna sinna, vita hverjir eru vinir þeirra, hvað er að gerast í skólanum og fylgjast vel með fyrrnefndum einkennum. Þá er auðvelt að leita ráðlegginga og hjálpar hjá heimilislækni barnsins, skólasálfræðingi eða kennara til að byrja með. Af öllu þessu hlýst svo margt gott í framhaldinu því foreldrar geta lagað svo margt í samvinnu við börnin sín.“ @Matur_undirskrift:thordis@frettabladid.is
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Innlent Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira