Innlent

Maðurinn sem féll í Helgafelli er þungt haldinn

Maðurinn, sem áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann í hlíðum Helgafells, ofan við Hafnarfjörð um miðjan dag í gær, reyndist mjög alvarlega slasaður og liggur hann þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans.

Maðurinn var einn á ferð, en hann er vanur útivist og var vel búinn. Ekkert er vitað hvernig slysið vildi til en maðurinn, sem var með farsíma, gat ekki hringt eftir aðstoð. Aðstandendur voru farnir að sakna hans og óskuðu eftir leit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×