Innlent

Fékk grýlukerti á sig

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það er vissara að passa sig á grýlukertunum.
Það er vissara að passa sig á grýlukertunum.
Grýlukerti á þakbrún á húsi við Dalbrekku féll á mann í Dalbrekku í Kópavogi um níuleytið í morgun. Hann er ekki alvarlega slasaður en sjúkrabifreið var kölluð til, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eftir klukkan tíu í morgun féll maður utandyra á Álfhólsvegi við Álfhólsskóla. Sjúkrabíll var kallaður til en ekki er vitað nánar um meiðsl hans.

Þá var ökumaður bíls stöðvaður á Reykjanesbraut við Kaplakrika um hálftíu í morgun. Þegar rætt var við ökumann vaknaði grunur um að ökumaður væri ölvaður. Hann var færður á næstu lögreglustöð og fékk málið hefðbundna meðferð. Um klukkan tíu var tilkynnt um innbrot í bifreið við Vallengi. Ekki er vitað hver var þar að verki né hvort einhverju hafi verið stolið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×