Innlent

Fimm Vítisenglar í gæsluvarðhaldi

Frá höfuðstöðvum Hells Angels í Hafnarfirði.
Frá höfuðstöðvum Hells Angels í Hafnarfirði.
Fimm einstaklingar, tengdi Vítisenglum á Íslandi, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna líkamsárása á konu í Hafnarfirði. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Þar sagði einnig að leiðtogi þeirra, Einar Marteinsson, sé á meðal þeirra sem sitja í varðhaldi en hann var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. Samkvæmt heimildum RÚV telur lögregla að hann hafi fyrirskipað árásirnar á konuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×