Víkurskarði yrði að loka fyrir göngin 10. janúar 2012 11:00 Steingrímur J. Sigfússon
Pálmi Kristinsson stingur upp á því að Víkurskarði verði lokað til að tryggja tekjur Vaðlaheiðarganga. Pálmi gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra. Verkfræðingurinn Pálmi Kristinsson, sem segir að forsendur fyrir því að Vaðlaheiðargöng geti borið sig sjálf séu rangar, stingur upp á öðrum leiðum til að fjármagna verkið en nú er gert ráð fyrir. Í tillögum Pálma í nýrri skýrslu hans um fjármögnun Vaðlaheiðarganga er lagt til að núverandi vegi um Víkurskarð verði lokað til að tryggja göngunum viðskipti. Í áætlunum Vaðlaheiðarganga ehf. er hins vegar gert ráð fyrir að vegfarendur hafi val um að aka um Víkurskarð. Það telur Pálmi óraunhæft því að ökumenn myndu fremur velja að aka um Víkurskarð en að borga í göngin. Samkvæmt fyrstu tillögu Pálma myndi ríkið leggja til óafturkræft 4 til 5 milljarða króna stofnframlag og ábyrgjast umframkostnað. Lánsfjármögnun yrði boðin út innanlands. „Verði þessi leið farin er lagt til að að ríkið taki ákvörðun um lokun Víkurskarðsvegar til þess að tryggja enn frekar rekstur VHG í framtíðinni,“ segir Pálmi sem einnig stingur upp á þeirri leið að heimamenn nyrðra og aðrir áhugasamir kaupi helmings hlut ríkisins út úr Vaðlaheiðargöngum ehf. Verkið yrði þannig unnið með einkafjármögnun og ríkið draga sig út úr beinni þátttöku í þessu verkefni. Sömuleiðis kveður Pálmi mögulegt að fara blandaða leið af þessum tveimur tillögum. Þá myndi einkahlutafélag safna 2 til 3 milljörðum króna í stofnframlag á móti sambærilegu framlagi frá ríkinu. Þannig væri um helmingur ganganna fjármagnaður með eigin fé. Sem fyrr þyrfti að loka Víkurskarðsvegi. Í skýrslu sinni segir Pálmi málið unnið á pólitískum forsendum. Hann gagnrýnir sérstaklega Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra og Kristján L. Möller, fyrrverandi samgönguráðherra. Furðulegt sé að Steingrímur sem fyrsti þingmaður Norðaustur-kjördæmis skuli sem fjármálaráðherra undirrita samninga við Vaðlaheiðargöng ehf. á sama tíma og hann sé einn harðasti talsmaður hagsmuna félagsins. Hið sama eigi við Kristján, sem sé annar þingmaður kjördæmisins en um leið stjórnarmaður í félaginu og berjist kröftuglega fyrir hagsmunum þess jafnt innan þings sem utan. „Vinnubrögð af þessu tagi standast ekki lágmarkskröfur um stjórnsýslu og siðferði í stjórnmálum og eru einna líkust þeim sem stunduð voru í Grikklandi fyrir fjármálakreppuna,“ segir Pálmi Kristinsson. gar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira