Rannsókn sýnir fram á skaðleg áhrif 10. janúar 2012 09:00 Yfirlæknir á ofnæmisdeild LSH segir að tölfræðilega séð sé greinilega samband á milli heilsu og raka í húsum. fréttablaðið/Stefán
Öndunarfæraeinkenni hjá fólki sem býr við raka í híbýlum sínum eru 30 til 50 prósent algengari en hjá þeim sem ekki búa við neinn raka. Samnorræn rannsókn frá árinu 2005 sýndi fram á að raki er í tæplega 20 prósentum húsa á Íslandi. Íbúar þeirra húsa sýna oftar ýmis öndunarfæraeinkenni eins og hósta, mæði og astma. María Ingibjörg Gunnbjörnsdóttir, lungna- og ofnæmislæknir og settur yfirlæknir ofnæmislækninga á Landspítala, hafði yfirumsjón með rannsókninni. „Niðurstöðurnar eru nákvæmlega í samræmi við aðrar rannsóknir sem hafa verið gerðar erlendis,“ segir María. „Áhættan fyrir öndunarfæraeinkennum er hærri hjá þeim sem búa við raka.“ Líkt og fram hefur komið í Fréttablaðinu að undanförnu er algengt að myglusveppur myndist í þeim húsum þar sem raki er mikill og er talið að hann geti valdið fyrrgreindum einkennum hjá íbúum. „Tölfræðilega séð er klárlega samband á milli,“ segir María. „Það eru til svo margar rannsóknir sem sýna tengsl á milli þessara þátta. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin er að taka á þessum málum og frá henni hefur komið að það sé ekki æskilegt að fólk búi í rakaskemmdu húsnæði, þó að ekki sé hægt að sýna fram á orsakasambandið með óyggjandi hætti.“ Talið er að myglusveppur sé í allt að 50 þúsund húsum á landinu.- sv
Mest lesið Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Erlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Innlent Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Erlent Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Innlent Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Innlent Fleiri fréttir Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Sveitarstjórn hafi látið aflífa hunda án heimildar Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Sjá meira