Frost á Langjökli - veðrið hamlar tökum 10. janúar 2012 14:52 Frost er vísindatryllir sem gerist uppi á jökli.
Rúmlega tuttugu manna kvikmyndatökulið er nú að tygja sig niður af Langjökli sökum veðursins sem gengur yfir landið. Verið er að gera hörkuspennandi íslenskan vísindatrylli sem á að heita Frost en myndin er í leikstjórn Reynis Lyngdal. Ingvar Þórðarson, framleiðandi myndarinnar, segir í samtali við Vísi að ekkert ami að fólkinu á jöklinum þrátt fyrir brjálað veður. Hann segir öryggið þó haft í fyrirrúmi og því hafi verið ákveðið að pakka saman og fara af jöklinum. Tökur hófust í gær og segir Ingvar að allt hafi gengið framar vonum. Í dag tókst einnig að ljúka tveimur þriðju af áætlun dagsins áður en veðrið setti strik í reikninginn. Ingvar segir þó að frá byrjun hafi verið gert ráð fyrir að veðrið gæti haft áhrif og því komi þetta ekki niður á kostnaðaráætlun. „Myndin gerist líka að mestu í brjáluðu veðri þannig að þetta hefur bara komið sér vel," segir Ingvar. Hann segir hópinn mjög vel búinn og að björgunarsveitarmenn séu með í för.Þessi mynd barst Vísi frá tökuliðinu rétt í þessu.Stefnt er að því að fara aftur upp á jökulinn um leið og færi gefst. „Við skoðum spána í kvöld og sjáum hvað setur," segir Ingvar að lokum og ítrekar að ekkert ami að fólkinu.
Mest lesið Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Erlent Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Erlent Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Innlent Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Fleiri fréttir Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Sjá meira