Innlent

Umferðarljós virka ekki

Umferðarljós eru dottin út á sumum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru bilunin aðallega bundin við miðbæ Reykjavíkur en fréttastofa hefur fengið fregnir af því að umferðarljósin á gatnamótum Grensásvegar og Suðurlandsbrautar virki ekki.

Ómögulegt er fyrir lögreglumenn að stjórna umferðinni á öllum þessum gatnamótum og er því ökumönnum bent á að fara eftir umferðarskiltum sem eru á öllum gatnamótum. Talið er að bilunina megi rekja til straumleysis af völdum veðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×