Innlent

Gefa varð trippum í Gæsadal næringu í æð

Björgunarmenn ásamt trippunum tveimur.
Björgunarmenn ásamt trippunum tveimur.
Trippin tvö, sem hafa verið innikróuð nyrst í Gæsadal vikum saman, voru orðin svo veikburða að gefa þurfti þeim næringu í æð á leið til byggða, samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar.

Gerður var út leiðangur björgunarsveitarmanna frá björgunarsveitinni Ægi á Grenivík í fyrradag, undir forustu Þórarins Péturssonar, bónda á Grýtubakka, í fylgd héraðsdýralæknis, til að sækja trippin tvö á snjótroðara Kaldbaksferða. Auk héraðsdýralæknis voru með í för dýralæknir og aðstoðarmaður á vegum eiganda trippanna. Björgunarsveitarmenn á þremur sérútbúnum vélsleðum aðstoðuðu bílstjóra snjótroðarans við að finna hentuga leið, en hvítt var yfir öllu og mjög blindað. Um tvo tíma tók að komast til trippanna og um þrjá tíma til baka. Aðstæður voru mjög erfiðar, víða laus snjór og brattlent. Ógerningur var að reyna að reka trippin til byggða sökum fannfergis, auk bágs ástands þeirra.

Trippin, sem eru hryssur, önnur veturgömul og hin tveggja vetra, voru mjög þreytt eftir ferðalagið. Þau hafa verið innikróuð í fjöllunum líklegast vikum saman en fundust fyrir tilviljun 28. desember. Síðan hefur þeim verið fært hey samkvæmt fyrirskipun búfjáreftirlitsins sem hafði gefið eigandanum frest til vikuloka að koma trippunum til byggða. Þegar Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir Norðausturumdæmis, fékk vitneskju um málið greip hann þar inn í og fyrirskipaði að þau skyldu sótt strax. Útlit er fyrir að litlu hryssurnar nái sér að fullu. Héraðsdýralæknir mun óska eftir því að lögregla skoði þátt eiganda trippanna í þessu máli. Hann hafði saknað hrossanna frá mánaðamótum október og nóvember.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×