Innlent

Hátt í 2000 manns hafa kosið utankjörfundar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Utankjörfundaratkvæðagreiðslan mun fara fram í Laugardalshöll frá og með fimmtudeginum.
Utankjörfundaratkvæðagreiðslan mun fara fram í Laugardalshöll frá og með fimmtudeginum.
Alls hafa 1856 kosið utankjörfundar vegna forsetakosninganna sem framundan eru. Þar af hafa 692 kosið í Reykjavík. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan hófst 5. maí síðastliðinn.

Í tilkynningu frá Sýslumanninum í Reykjavík kemur fram að utankjörfundaratkvæðagreiðsla mun flytjast í Laugardalshöll á fimmtudag og verður þá opið alla daga frá tíu á morgnana til tíu á kvöldin, en lokað verður 17. júní. Á laugardaginn næsta verða tvær vikur til kosninga, en kosið er laugardaginn 30. júní.

Sex eru í framboði, þau Andrea Ólafsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason, Herdís Þorgeirsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×