Tæplega tíu þúsund sækja um í Háskóla Íslands 12. júní 2012 16:08
Tæplega 9.500 umsóknir um grunn- og framhaldsnám bárust Háskóla Íslands fyrir komandi haustmisseri. Það er fjölgun frá metárinu í fyrra þegar ríflega 9.200 umsóknir bárust skólanum samkvæmt tilkynningu frá skólanum. Ef horft er til ársins 2009 má sjá að umsóknum hefur fjölgað um rúm 40 prósent en þá voru þær um 6.800. Tæplega 6.400 umsóknir um grunnnám bárust skólanum í ár og nemur fjölgun slíkra umsókna á milli ára tæpum fimm prósentum. Þegar horft er til einstakra sviða Háskóla Íslands bárust flestar umsóknir um grunnnám á Hugvísindasviði eða 1.590. Þá sóttu 1.525 um grunnnám á Félagsvísindasviði, 1.441 á Heilbrigðisvísindasviði, 1.148 á Verkfræði- og náttúruvísindasviði og 659 á Menntavísindasviði. Samanlagt gera þetta 6.363 umsóknir um grunnnám á öllum sviðum háskólans en til samanburðar voru þær 6.078 í fyrra. Umsóknir um framhaldsnám eru 3.122 og hafa þær ekki verið fleiri við Háskóla Íslands frá upphafi. Í fyrra voru umsóknirnar 3.022. Í meistaranámi og öðru námi á meistarastigi fjölgar umsóknum í meirihluta af 25 deildum skólans þótt fjölgunin sé mismikil. Fyrr í mánuðinum var greint frá því að metfjöldi umsókna hefði einnig borist um skólavist í Háskólann í Reykjavík. Þegar umsóknarfrestur rann út á miðnætti þann 5. júní höfðu 2099 umsóknir um skólavist borist til Háskólans í Reykjavík. Það eru 22% fleiri umsóknir en bárust á sama tíma árið 2011 og 44% fleiri umsóknir um skólavist en bárust árið 2010. Þetta er ennfremur mesti fjöldi umsókna sem borist hefur fyrir nám á haustönn frá stofnun háskólans.
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira