Brunnin kanína í Garðabæjarhrauni 4. janúar 2012 08:30 Kanínan var ljósbrún að lit og brunnin á annarri hliðinni. Fréttablaðið/Stefán „
Við sáum bara að það var búið að brenna kanínuna og inni í kassanum var allt brunnið," segir Helga Berglind Tómasdóttir, ellefu ára, sem var úti að ganga ásamt frænku sinni, Söru Hlín Bjarnadóttur, tólf ára, í hrauninu við Garðabæ í gærdag. Stöllurnar voru að viðra hund Söru þegar þær gengu fram á lítinn kanínukassa sem kveikt hafði verið í. Skammt frá lá kanínan, brunnin á annarri hliðinni og frosin. „Það var ógeðslegt að sjá þetta. Við urðum smá hræddar," segir Helga. Stúlkurnar fóru rakleiðis heim og létu foreldra Söru vita. Þær hringdu í kjölfarið í Neyðarlínuna, sem gaf þeim samband við lögreglu. „Löggan vildi ekki gera neitt," segir Helga og tekur Sara undir það. „Það svaraði einhver kona og hún gaf mér samband við lögregluna. Þá svaraði maður og ég sagði honum að við hefðum fundið brunna kanínu," útskýrir Sara, sem sagði lögreglunni hvað gerst hafði, hvað þær frænkur hétu og hvað þær væru gamlar, en fékk dræm viðbrögð. „Hann sagði bara að þeir gætu ekki farið að leita að þessu núna. Þetta væri úti í hrauni og líklega erfitt að finna," segir Sara. „Við hefðum samt alveg getað sýnt þeim hvar þetta var," segir Helga. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lögreglumanni hjá lögreglunni í Garðabæ í gærkvöld, var málið ekki fært til bókar í gær. Undir eðlilegum kringumstæðum hefðu verið sendir menn á vettvang þegar svona mál koma upp.Kveikt hafði verið í kanínukofanum og kanínunni, sem lá frosin skammt frá, þegar frænkurnar Söru Hlín Bjarnadóttur og Helgu Berglindi Tómasdóttur bar að.„Við munum að sjálfsögðu kíkja á þetta," segir lögreglan. „Ég bendi stelpunum á að hafa samband við okkur í dagsbirtu og við munum þá kíkja á þetta." Að mati lögreglumannsins er afar erfitt að átta sig á því hver gerir svona lagað. Hann ítrekar þó að málið hafi ekki verið fært til bókar í gærdag. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira