Kanínan var dauð þegar hún brann Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. janúar 2012 18:41 Kanínan var illa útleikin eftir eldinn. mynd/ stefán.
Maður sem kveikti í kanínu og kanínukofa í Garðabæ, segir að kanínan hafi verið dauð þegar að hann kveikti í henni. Þetta er fullyrt á vef lögreglunnar. Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að ungar stúlkur hefðu gengið fram á kanínuna og málið verið tilkynnt til lögreglu við litlar undirtektir. Lögreglan segir að mjög óljósar upplýsingar hafi legið fyrir um vettvang og tilkynnendur, sem voru börn í þessu tilviki, hafi verið beðnir um frekari upplýsingar að höfðu samráði við foreldra sína. Samkvæmt frásögn lögreglunnar hittu lögreglumenn börnin og forráðamann þeirra þegar málið hafði tekið á sig skýra mynd og var vísað á staðinn þar sem kanínuna var að finna. Á vettvangi hafi einnig verið brunninn kofi, sem ætla megi að kanínan hafi verið í. Bæði henni og kofanum hafi verið fargað. Nokkru síðar hafi maður haft samband við lögreglu og upplýst að hann hefði kveikt í kofanum með kanínuna innanborðs. „Maðurinn tók hins vegar alveg skýrt fram að hún hefði verið dauð áður en hann bar eld að kofanum og hefði dauða kanínunnar borið að með eðlilegum hætti. Lögreglan telur ekki ástæðu til að rengja frásögn mannsins en hann var mjög miður sín vegna málsins. Maðurinn gat þess ennfremur að hann hefði alltaf ætlað sér að urða bæði kofann og hræið en því verki hefði því miður bara verið rétt ólokið þegar börnin komu að og þótti honum það afar leitt," segir á vef lögreglunnar.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira