Segir hunda geta verið manndrápstól Lóa Aldísardóttir skrifar 4. janúar 2012 19:37
Faðir fimm ára stúlku sem var bitin í andlit af hundi síðsumars telur ekki vit í öðru en að lóga hundi eftir að hafa bitið manneskju. Hann segir hunda geta verið manndrápsvélar og því sé rétt að skylda hundaeigendur til að sækja námskeið, rétt eins og þá sem sækja um byssuleyfi. Fjölskyldan býr í Vogum við Vatnsleysuströnd, þangað sem við heimsóttum þau í gær. Tveir hundar eru á heimilinu, svo dæturnar eru vanar að umgangast hunda. En í sumarlok var Victoría Nótt Jakobsdóttir að leika við vinkonu sína hjá nágrönnum þeirra, þær höfðu verið að hlaupa fram og til baka eftir gangi þar sem tíkin Tinna lá í fleti sínu. Victoría segir að hún hafi gengið að tíkinni og farið að klappa henni en þá hafi Tinna bitið hana í andlitið. Jakob Sigurðarson, faðir Victoríu, kveðst hafa búist við hinu versta þegar nágranninn hringdi til að láta vita, enda var Tinna af tegundinni Stóra Dan - sem getur orðið ansi stór. En til allrar mildi hafði tíkin ekki farið í augu stúlkunnar. Hann segir hundinn þó hafa náð góðu taki á Victoríu með kjaftinum og skildi eftir langar rispur eftir andlitinu og ofan í neðri vörina á stúlkunni. Hann er ákaflega sáttur við viðbrögð nágrannans sem hafði frumkvæði að því að fara með tíkina í svæfingu strax daginn eftir bitið. Þetta virðist hins vegar ekki vera reglan. Á síðustu þremur árum hefur Hanna Arnórsdóttir, dýralæknir í Garðabæ meðhöndlað 20 hunda sem voru kærðir vegna bits eða glefsu, aðeins þremur var lógað. Hanna telur það gamaldags viðhorf að aflífa hund án þess að skoða hvað olli því að hundurinn beit. Jakob telur hins vegar svæfingu eina svarið í stöðunni. Kveðst myndu bregðast eins við, ef hans hundar bitu manneskju. „Ég myndi ekki vilja hafa hundinn minn í kringum börnin mín ef hann hefur bitið áður." Hann kveðst sannfærður um að hafi hundur bitið einu sinni, þá muni hann bíta aftur. Þá telur hann rétt að skylda fólk til að sækja námskeið áður en það fær leyfi til hundahalds, rétt eins og þegar fólk fær byssuleyfi. Vel sé hægt að þjálfa hunda upp í að verða væna fjölskylduvini en líka sé hægt að þjálfa hundi upp sem drápsvélar. Því sé ekki sama hverjir fái leyfi til að halda hunda.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Fleiri fréttir Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Sjá meira