Lífið

Í það heilaga á Airwaves

Lindsay Levkoff og Dean Diamond eru miklir aðdáendur Of Monsters and Men.
Lindsay Levkoff og Dean Diamond eru miklir aðdáendur Of Monsters and Men.
Lindsay Levkoff og Dean Diamond eru á meðal þeirra fjölmörgu erlendu gesta sem sækja Ísland heim yfir Iceland Airwaves-tónlistarhátíðina. Heimsókn Lindsay og Dean er þó sérstök fyrir þær sakir að þau ætla að gifta sig hér á landi þann 1. nóvember og enda brúðkaupsdaginn á tónleikum með Of Monsters and Men, sem er uppáhaldshljómsveit parsins.

„Við vorum ekki hrifin af hugmyndinni um hefðbundið brúðkaup og vildum heldur hafa brúðkaupið lítið og innilegt. Þegar hjónaband barst fyrst í tal stakk ég upp á því í gríni að við ættum að hlaupast á brott og gifta okkur á Íslandi. Grínið vatt upp á sig og fljótlega vorum við farin að skipuleggja þessa stund," útskýrir Lindsay. Hún og Dean vinna bæði hjá fyrirtækinu Spark Fun Electronics og þar blómstraði ástin. Þau hafa verið saman frá árinu 2009 og segir Lindsay að sameiginlegur tónlistaráhugi þeirra hafi verið kveikjan að sambandinu.

Vinur Lindsay kynnti hana fyrir tónlist Of Monsters and Men fyrir nokkru síðan og varð hún svo heilluð af hljómsveitinni að hún festi strax kaup á breiðskífunni My Head is an Animal. Hún og Dean sóttu stuttu síðar tónleika með sveitinni í Denver. „Þau slógu í gegn. Á leiðinni heim töluðum við mikið um hvað tónleikarnir hefðu verið góðir og að okkur langaði að sjá sveitina spila aftur, helst á Íslandi."

Svo virðist sem forlögin hafi látið til sín taka því nokkru eftir tónleikana frétti Lindsay af því að Icelandair ætlaði að hefja beint flug til Íslands frá heimabæ hennar. Hún stakk upp á ævintýraferð til Íslands við Dean og næst þegar hún fór á vefinn sá hún auglýsta pakkaferð á Iceland Airwaves sem hún ákvað að kaupa. „Þá var ekki búið að tilkynna þátttöku Of Monsters and Men og þú getur rétt ímyndað þér hvað við vorum glöð þegar þau bættust við listann." - sara@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.