Búvörusamningar framlengdir um tvö ár 29. september 2012 05:00 Þeir Sveinn Sæland, formaður Sambands garðyrkjubænda, og Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, tóku í hendur ráðherra á Hótel Sögu í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra og Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra skrifuðu í gær ásamt fulltrúum bænda undir breytingu á búvörusamningum. Þá var einnig skrifað undir nýjan búnaðarlagasamning. Gildandi búvörusamningar um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða, mjólkurframleiðslu og sauðfjárræktar voru framlengdir um tvö ár og gilda nú til ársins 2017. Litlar breytingar verða á framlögum ríkisins vegna samninganna aðrar en þær sem rekja má til verðlagsbreytinga. Samningarnir kalla því ekki á aukin útgjöld ríkissjóðs miðað við framkomið fjárlagafrumvarp. Samkvæmt samningunum verður framlag ríkisins til garðyrkjunnar 283 milljónir á ári næstu þrjú ár á verðlagi ársins í ár. Þá verður framlag til mjólkurframleiðslu 6.041 milljón króna og framlag til sauðfjárræktar 4.477 milljónir. Litlar sem engar breytingar voru gerðar á efni búvörusamninganna. Þó var fyrirvari settur inn í samningana um hugsanlegar breytingar sem kunni að leiða af niðurstöðum samningaviðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. En ljóst er að aðild myndi hafa í för með sér talsverðar breytingar á umhverfi búvöruframleiðslu hér á landi. Í nýja búnaðarlagasamningnum eru framlög ríkisins hins vegar aukin nokkuð frá því sem var. Einkum eru framlög til jarðræktar og eflingar kornræktar aukin. Þannig hækka heildargreiðslur ríkisins samkvæmt samningum úr 425 milljónum í ár í 558,5 milljóna króna á næsta ári. - mþl
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira