Ballinu í London hvergi nærri lokið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2012 06:00 Matthildur Ylfa keppir fyrst íslenskra kvenna í frjálsum íþróttum á Ólympíumóti. Fréttablaðið/Stefán
Setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra fer fram á Ólympíuleikvanginum í London í kvöld. Um 4300 keppendur eru mættir til Englands þar sem keppt verður í tuttugu íþróttagreinum. Frjálsíþróttakappinn Helgi Sveinsson verður fánaberi Íslands og hlakkar mikið til. „Það gerist ekki betra en að komast inn á Ólympíumótið og halda á fánanum fyrir mína þjóð. Ég trúi þessu varla enn þá," segir Helgi, sem er einn fjögurra fulltrúa Íslands á leikunum. Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir keppa í sundi og Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir í frjálsum íþróttum. Hún stígur fyrst íslensku keppendanna á sviðið á föstudagsmorgun. „Ég finn fyrir smá fiðringi í maganum. Ég held að hann eigi eftir að aukast með hverjum deginum sem líður fram að keppni," segir hin fimmtán ára Matthildur Ylfa. Jón Margeir og Kolbrún Alda keppa einnig á föstudagsmorgun í baksundi og Helgi um kvöldið í langstökki. Fyrsta Ólympíumót fatlaðra var haldið í Róm 1960 en Íslendingar kepptu fyrst í Arnheim í Hollandi árið 1980. Sundkonan Sigurrós Karlsdóttir vann til fyrstu gullverðlauna Íslands á mótinu og Jónas Óskarsson fagnaði bronsi í lyftingum. Síðan þá hefur íslenska þjóðin getað fagnað verðlaunum á fjögurra ára fresti: 36 gull, 19 silfur og 42 brons eru uppskeran og ágætur möguleiki á því að fjölgi í verðlaunasafninu í London. „Við höfum átt ótrúlega afreksmenn í gegnum tíðina. Það var í fyrsta skipti í Peking fyrir fjórum árum sem við fengum engin verðlaun. Ég hef fulla trú á því að einhver úr þessum hópi skili okkur verðlaunum. Við verðum að krossa fingur," segir Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri afrekssviðs Íþróttasambands fatlaðra. Ólíkt Ólympíuleikunum er fjöldi keppenda á Ólympíumótunum fyrirfram ákveðinn. Að ná lágmarki er því ekki ávísun á þátttökurétt á mótinu. Því er ljóst að keppendur í London eru rjóminn af afreksfólki úr röðum fatlaðra um allan heim sem margir hverjir sitja heima með sárt ennið. Það er tilfellið á Íslandi enda fékk Ísland aðeins eitt sæti fyrir hvort kyn í frjálsum íþróttum og sundi þó fleiri hefðu náð tilskildum lágmörkum. Reiknað er með miklu sjónarspili á setningarathöfninni á Ólympíuleikvanginum í kvöld. Í hönd fer ellefu daga veisla sem enginn íþróttaáhugamaður ætti að missa af.
Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Íslenski boltinn Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Fleiri fréttir Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur „Keyrðum þetta saman í gegn“ Írak - Noregur | Langþráð stund fyrir norsku þjóðina „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig Mbappé sá um Senegal fyrir Frakka Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Diljá Ýr komin í undanúrslit bikarsins Freyr ekki lengi án starfs? Amorim kynntur til leiks hjá AC Milan Stjarnan mætir Víkingi í undankeppni Sambandsdeildar Viktor tekur við Haukum Vestri mætir liði sem komst í umspil Meistaradeildarinnar Besta sætið: Drónasvif yfir best rekna klúbbi landsins Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum „Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Ásta Júlía kveður Val Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Hilmar Smári áfram í Stjörnunni „Töluvert öðruvísi golf sem er spilað núna“ Sjáðu Fram sækja sigur í sjö marka leik gegn KA Sjá meira