1,5 milljónir tonna af makríl við Ísland 28. ágúst 2012 07:00 Árni friðriksson Eitt fjögurra skipa sem tóku þátt í rannsóknaleiðangri þar sem útbreiðsla og magn makríls og annarra tegunda var kortlögð. fréttablaðið/gva vísir/gva
Um 5,1 milljón tonna af makríl mældist í sex vikna rannsóknarleiðangri Íslendinga, Færeyinga og Norðmanna í sumar og þar af 1,5 milljónir tonna innan íslenskrar efnahagslögsögu. Það er um 29% af heildarmagninu á rannsóknasvæðinu, að því er Hafrannsóknastofnun greinir frá. Rannsóknirnar voru um borð í fjórum skipum frá Íslandi, Færeyjum og Noregi en markmið leiðangursins var að kortleggja útbreiðslu og magn makríls og annarra uppsjávarfiskistofna í Norðaustur-Atlantshafi meðan á ætisgöngum þeirra um norðurhöf stendur ásamt því að kanna ástand sjávar og átustofna á svæðinu. Þó svo að niðurstöður þessar séu ekki enn þá lagðar til grundvallar mati á heildarstofnstærð makríls innan Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) staðfesta þær, líkt og leiðangrar fyrri ára, víðáttumikla útbreiðslu makrílsins. Þá sýna þær að elsti makríllinn ferðast lengst í sínum ætisgöngum í NA-Atlantshafi á sumrin. Skörun á útbreiðslu makríls og síldar var einkum vestan til í Austurdjúpi og austur af Íslandi. Á austanverðu hafsvæðinu var lítið af síld. Bergmálsvísitala norsk-íslenskrar síldar mældist 7,2 milljónir tonna og niðurstöður leiðangursins síðustu fjögur ár sýna því svipaða neikvæða þróun stofnstærðar og mat Alþjóðahafrannsóknaráðsins er. Yfirborðshiti sjávar í Norðaustur-Atlantshafi var að öllu jöfnu yfir langtímameðaltali. - shá
Fréttir Mest lesið Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Erlent Fleiri fréttir Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Sjá meira