Innlent

Helle Thorning-Schmidt hingað

Danski forsætisráðherrann mun funda með Jóhönnu Sigurðardóttur á mánudaginn.
Danski forsætisráðherrann mun funda með Jóhönnu Sigurðardóttur á mánudaginn. Vísir/afp
Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, kemur í opinbera heimsókn til Íslands næstkomandi mánudag.

Thorning-Schmidt mun funda með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra Íslands. Jóhanna mun taka á móti danska forsætisráðherranum í Þingvallabústaðnum fyrir hádegi á mánudag.

Síðdegis mun Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sýna Thorning-Schmidt húsakynni Alþingis.

Þá verður opinber kvöldverður í boði forsætisráðherrahjónanna í Þjóðmenningarhúsinu að kvöldi mánudags, en Thorning Schmidt heldur héðan til Grænlands á þriðjudag. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×