Var hótað með eigin haglabyssu 22. ágúst 2012 06:30 Mennirnir bundu húsráðandann í stól með límbandi og límdu síðar um nóttina fyrir munn hans.
Ríkissaksóknari hefur ákært tvo menn, Snorra Sturluson og Daniel Arciszewski, fyrir hrottalegt rán og frelsissviptingu í Breiðholti í júlí síðastliðnum. Samkvæmt ákæruskjali réðust mennirnir inn til rúmlega sextugs manns í Krummahólum klukkan þrjú um nótt, héldu honum þar nauðugum til ellefu um morgun og beittu hann allan tímann ofbeldi og hótuðu honum lífláti. Í ákærunni segir að þeir hafi bundið hann með límbandi við stól í stofu íbúðarinnar, beint haglabyssu í eigu húsráðandans að höfði hans og skipað honum að skrifa undir skjal þess efnis að hann skuldaði mönnunum peninga. Þeir hafi jafnframt bundið hann á höndum og fótum ofan í baðkari með rafmagnssnúru sem fest var við blöndunartæki, troðið tusku upp í hann og límt fyrir. Nokkru síðar hafi þeir neytt hann til að gefa upp PIN-kóða á debetkorti, tekið út 20 þúsund krónur og látið hann millifæra 435 þúsund krónur á reikning annars þeirra. Þeir rændu líka af honum sjónvarpi, tölvuskjá, kassettutæki, ullarteppi og seðlaveski. Þolandi árásarinnar gerir 3,2 milljóna króna skaðabótakröfu á hendur ræningjunum, sem eru 43 og 33 ára. Þeir hafa sætt gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp.- sh
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Sjá meira