Vilja skýr svör um bótaskyldu 13. febrúar 2012 04:00 Díoxín fannst í kjöti, mjólk og fóðri með þeim afleiðingum að bændur misstu lífsviðurværi sitt.fréttablaðið/rósa
Þrír bændur telja að Ísafjarðarbær beri ábyrgð á því tjóni sem þeir urðu fyrir af völdum díoxín-mengunar frá sorpbrennslustöðinni Funa í Engidal. Lögmaður bændanna hefur skrifað Ísafjarðarbæ, sem átti og rak Funa, og óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til bótaskyldu. Í bréfinu segir einnig að bændurnir hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna mengunarinnar. Næstu vikur og mánuðir fari í að meta tjónið og ekki sé ósennilegt að leita þurfi til dómkvaddra matsmanna, náist ekki samkomulag við sveitarfélagið. Eftir að málið kom upp þurfti að slátra öllu búfé á bænum Efri-Engidal og Kirkjubóli í Skutulsfirði. Auk þess þótti nauðsynlegt að slátra sjö kálfum frá Neðri-Hjarðardal í Dýrafirði þar sem þeir komu allir frá Efri-Engidal. Fengu bændurnir ekkert greitt fyrir afurðirnar enda var þeim fargað. Hinn 11. janúar síðastliðinn var aflétt banni á nýtingu fóðurs frá svæðinu. „Niðurstöðurnar breyta hins vegar engu um þann búfénað sem var eða er mengaður, né heldur breyta niðurstöðurnar banni á nýtingu eldra fóðurs frá Engidal. Áfram er því bann við nýtingu afurða þeirra dýra sem alin voru á fóðri frá svæðinu þegar mengunin var meiri en nú er,“ segir í bréfi lögmannsins til sveitarfélagsins. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur óskað eftir umsögn Andra Árnasonar, bæjarlögmanns Ísafjarðarbæjar, um málið. - shá
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Erlent Fleiri fréttir Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sjá meira