Innlent

Leggja áherslu á jákvæðar fréttir

Ánægðir ritstjórar Kolbrún og Ellý eru engir nýgræðingar í lífsstílsblaðamennsku. Fréttablaðið/anton
Ánægðir ritstjórar Kolbrún og Ellý eru engir nýgræðingar í lífsstílsblaðamennsku. Fréttablaðið/anton
Lífið, nýtt fylgirit Fréttablaðsins um lífsstíl og dægurmál, kemur út í fyrsta sinn í dag í ritstjórn Ellýjar Ármannsdóttur og Kolbrúnar Pálínu Helgadóttur.

„Við vorum búnar að ganga með þá hugmynd í maganum um nokkurt skeið að gera létt og skemmtilegt lífsstílsblað fyrir konur sem yrði laust við alla æsifréttamennsku,“ segir Kolbrún Pálína um nýja verkefnið. „Við erum því afar ánægðar með að það sé orðið að veruleika.“

Ellý og Kolbrún búa að talsverðri reynslu af skrifum um lífsstíl – Ellý hefur um hríð verið umsjónarmaður Lífsins á Vísi og Kolbrún Pálína ritstýrði Nýju lífi í rúmt ár þar til í fyrrasumar.

Lífið mun koma út alla föstudaga og leysir af hólmi vikublaðið Föstudag.

Í fyrsta tölublaðinu er meðal annars að finna viðtal við Manuelu Ósk Harðardóttur, sem er flutt til Íslands eftir að hafa staðið í ströngu í Bretlandi undanfarin fjögur ár.

Þá má jafnframt lesa um skoðanir nokkurra þjóðþekktra kvenna á því að þær hafi verið orðaðar við embætti forseta Íslands.

Kolbrún Pálína segir að þær Ellý ætli að hafa jákvæðnina að leiðarljósi við ritstjórnina.

„Í þessu blaði verða eingöngu jákvæðar og skemmtilegar fréttir af fólki, viðtöl við sterkar íslenskar konur úr öllum stéttum þjóðfélagsins og uppbyggileg umfjöllun um lífsstíl.“ - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×