Nýtt kvótafrumvarp lagt fram á næstunni 17. janúar 2012 08:30 Líkt og oft áður lýstu þingmenn gjörólíku samfélagi, eftir því hvort þeir styðja stjórnina eða ekki. Steingrímur J. Sigfússon sagði áhyggjuefni hve lítil hugmyndafræðileg endurnýjun hefði átt sér stað hjá þeim sem áður réðu hér ferðinni. fréttablaðið/gva
Breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu verða lagðar fram á næstu vikum. Forsætisráðherra telur árangur hafa náðst í efnahagsmálum og vill þjóðaratkvæði um nýja stjórnarskrá. Stjórnarandstaðan gagnrýnir lítinn efnahagsbata. Breytingar á stjórnarráðinu munu skila öflugri ráðuneytum og betri þjónustu í viðkomandi málaflokkum, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Alþingi hófst í gær og umræður voru um skýrslu forsætisráðherra. Jóhanna sagði stóra aðila í atvinnulífinu, eins og ferðaþjónustuna, hafa kallað eftir breytingum á æðstu stjórn þess málaflokks. Hún boðaði stofnun nýs atvinnuvegaráðuneytis sem styrkja mundi þjónustuna við atvinnulíf. Þá yrði nýskipan í orku- og auðlindamálum innleidd með nýju umhverfis- og auðlindaráðuneyti sem starfar eftir nýrri orkustefnu. Áherslan á umhverfismál yrði meiri eftir breytingarnar. Við stofnun Velferðarráðuneytis og innanríkisráðuneytis fækkaði ráðuneytisstjórum um tvo og skrifstofustjórum um 13 og sagði Jóhanna að skrifstofukostnaður væri tugmilljónum króna lægri eftir breytingarnar. Góð reynsla væri því af sameiningum ráðuneyta. Jóhanna og Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boða breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu á næstu vikum. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, dró í efa að góð reynsla væri af jafn stóru ráðuneyti og Velferðarráðuneytinu. Hann sagði breytingar á stjórnarráðinu einkennast af hringlandahætti. Allir vissu að brotthvarf Jóns Bjarnasonar úr ríkisstjórn væri vegna þess að hann hefði ekki sýnt samstarfsvilja í viðræðum við Evrópusambandið. Upp á eftirmann hans, Steingrím J. Sigfússon, stæði að lýsa því hvernig hann hefði lofað því að haga sér með öðrum hætti í þeim efnum. Bjarni sagði breytingar á skattkerfinu hafa verið til skaða. „Ég stend ekki hér til að segja að hvergi hafi þokast á neinu sviði. Ég er að segja að það sé hægt að gera svo miklu, miklu betur,“ sagði Bjarni, og vísaði í efnahagstillögur Sjálfstæðisflokksins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sakaði Steingrím um að hafa margoft gripið inn í rekstur fjármálafyrirtækja, án umræðu á Alþingi. Það hefði hann gert í skjóli neyðarlaganna, en endurskoðun þeirra, sem átt hefði að fara fram fyrir árslok 2009, hefði aldrei farið fram. Sigmundur sagðist sammála um að tækifærin á Íslandi væru gríðarlega mikil. „Ef rétt er haldið á málum má nýta þau tækifæri vel. Til þess þarf breytta stefnu og breytta ríkisstjórn.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira