Stækkun virkjunar á að hefjast á þessu ári 14. janúar 2012 09:00 Búið er að byggja hluta álversins þrátt fyrir að enn sé alls óvíst hvort það muni taka til starfa. Fréttablaðið/Pjetur
HS Orka ætlar að ljúka nýjum orkusölusamningi og byrja að stækka Reykjanesvirkjun í ár. Framkvæmdum á að ljúka á fyrri hluta ársins 2014. Verið er að ræða við Norðurál. Áformin voru kynnt á fundi með fjárfestum í síðustu viku. HS Orka ætlar sér að ljúka nýjum orkusölusamningum á fyrri hluta ársins 2012 og byrja framkvæmdir við að auka framleiðslugetu Reykjanesvirkjunar um 80 MW á síðari hluta þess. Stefnt er að því að fyrri hluti næstu stækkunar Reykjanesvirkjunar, sem kallast Reykjanes 3, verði lokið á síðari hluta ársins 2013. Hinn hlutinn, Reykjanes 4, á að klárast á fyrri hluta ársins 2014. Þetta kemur fram í kynningu sem Alterra Power, eigandi 75% af hlutafé í HS Orku, hélt fyrir fjárfesta 6. janúar síðastliðinn. Jarðvarmi, félag í eigu íslenskra lífeyrissjóða, á fjórðung í HS Orku. Að sögn Ásgeirs Margeirssonar, eins af aðstoðarforstjórum Alterra Power, eru einu samningaviðræðurnar sem í gangi eru við Norðurál vegna mögulegrar orkusölu HS Orku til álvers í Helguvík. Fyrirtækið gerði orkusölusamning við Norðurál árið 2007 sem ágreiningur var uppi um hvort væri gildur. Málinu var skotið til gerðardóms í Svíþjóð sem komst að þeirri niðurstöðu í desember síðastliðnum að samningurinn væri í gildi. Hins vegar eru fyrirvarar í niðurstöðunni um að þær framkvæmdir sem HS Orka þarf að ráðast í til að uppfylla samningin séu arðbærar. Forsvarsmenn HS Orku telja þær ekki vera það samkvæmt núverandi samningi. Í tilkynningu sem HS Orka sendi frá sér vegna gerðardómsins kemur fram að HS Orka muni „vinna með Norðuráli að því að ná ásættanlegri niðurstöðu varðandi þau atriði sem upp hafa komið með þessum úrskurði“. Heimildir Fréttablaðsins herma að í kynningu Alterra frá því í síðustu viku sé gert ráð fyrir því að viðunandi samningar náist við Norðurál. Þeir myndu fela í sér að hægt væri að ráðast í þriðja og fjórða hluta uppbyggingar á Reykjanesvirkjun sem mundi skila um 80 MW af orku. Í kynningunni er gert ráð fyrir að framkvæmdir við þá stækkun hefjist á seinni hluta þessa árs og að henni verði að fullu lokið á fyrri hluta árs 2014. Öll virkjanaleyfi fyrir þeim stækkunum liggja þegar fyrir. Þar er einnig sagt að stefnt sé að því að virkja um 50 MW af orku í Eldvörpum fyrir lok árs 2016. Á meðal næstu verkefna Alterra sé að fjármagna þriðja og fjórða áfanga Reykjanesvirkjunar og virkjun Eldvarpa. Ef ekki nást samningar við Norðurál mun það fresta áætlunum Alterra fyrir HS Orku eitthvað en ekki breyta þeim. Verði viðræðunum endanlega slitið munu nýjar hefjast við aðra áhugasama orkukaupendur. thordur@frettabladid.is
Mest lesið „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Fleiri fréttir Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Sjá meira