Innlent

Fuglavernd styður bannið

Stofninn hefur minnkað um 44% á landsvísu á 25 árum.mynd/jóHann óli hilmarsson
Stofninn hefur minnkað um 44% á landsvísu á 25 árum.mynd/jóHann óli hilmarsson
Fuglavernd styður eindregið niðurstöðu meirihluta svartfuglanefndar umhverfisráðherra um að veiðar á svartfugli verði bannaðar í fimm ár. Í tilkynningu segir að ástundun veiða úr hnignandi stofnum sé siðlaus umgengni við náttúruna og veiðibann eina siðlega viðbragðið við stofnhruni tegunda.

Þá segir að það hljóti að vera hagsmunir allra sem nýta svartfugla að stofnarnir séu sterkir og sjálfbærir, en öll sérhagsmunavarsla geti spillt tiltrú almennings á siðferði veiðimanna. Ívilnanir á fyrirkomulagi veiðistjórnunar séu í andstöðu við varúðarreglu sem leyfir sjófuglum að njóta vafans.- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×