Innlent

Fleiri þráðlaus net á næstunni

Félagsmiðstöðin á Vesturgötu býður þráðlaust net.
Félagsmiðstöðin á Vesturgötu býður þráðlaust net.
Reykjavíkurborg er að fjölga þráðlausum nettengingum í félagsmiðmiðstöðvum sínum.

Að því er kom fram á fundi mannréttindaráðs borgarinnar verður komið upp slíkum tengingum í Gerðubergi og á Korpúlfsstöðum á næstu vikum. Þegar eru þessir svokölluðu „hot spots“ í félagsmiðstöðvunum í Hvassaleiti 56, Hæðargarði 31, Aflagranda 40, Vesturgötu 7, Árskógum 4 og Bólstaðarhlíð 43.

Á fundi mannréttindaráðs kom einnig fram að tölvur með nettengingu eru til afnota fyrir gesti á bókasöfnum borgarinnar gegn gjaldi. Einnig sé boðið upp á ókeypis tölvunámskeið í félagsmiðstöðvum. Því telur mannréttindaráð að borgin sinni hlutverki sínu að tryggja aðgang að netinu fyrir alla. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×