Aflétta þarf óvissu verktaka 13. janúar 2012 07:15 Formaður stjórnar Vaðlaheiðarganga og meðstjórnendur hennar segja helstu sérfræðinga landsins hafa komið að undirbúningi gangagerðarinnar.
Stjórn Vaðlaheiðarganga hf. segir að unnið hafi verið að gerð ganga undir Vaðlaheiði á faglegum forsendum í fullu samráði við „þar til bæra aðila“, eins og segir í yfirlýsingu. „Leitað hefur verið til helstu sérfræðinga landsins varðandi undirbúning og dreginn lærdómur af fyrri jarðgangaverkefnum,“ segir stjórnin. „Niðurstaða útreikninga varðandi endurgreiðslur lána er sú að verkefnið geti endurgreitt lán að fullu á grundvelli veggjalda út frá þeim forsendum sem kynntar hafa verið.“ Bornar eru saman skýrsla Pálma Kristinssonar verkfræðings og skýrsla IFS Greiningar fyrir fjármálaráðuneytið. Meginmunurinn er sagður sá að Pálmi kveðist einkum byggja á eigin reynslu ásamt upplýsingum af fundi í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis en IFS hafi unnið með gögn helstu sérfræðinga landsins. Fyrir liggi tilboð eða kostnaðaráætlanir fyrir alla þætti. „Það er von félagsins að ákvörðun um framhald og undirbúning Vaðlaheiðarganga verði tekin sem fyrst til að aflétta óvissu gagnvart verktökum og öðrum sem hagsmuni hafa af framkvæmdinni. Mikilvægt er að tafir á ákvörðun skaði verkefnið ekki enn frekar,“ segja Kristín H. Sigurbjörnsdóttir formaður og meðstjórnendurnir Kristján L. Möller og Pétur Þór Jónasson í stjórn Vaðlaheiðarganga hf. - gar
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira