Vill að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að Schengen á árinu 12. janúar 2012 10:30 Morten Bødskov, dómsmálaráðherra Danmerkur, vill hleypa Rúmeníu og Búlgaríu inn í Schengen-samstarfið sem fyrst. Mynd/Lars Svankjær
Morten Bødskov, dómsmálaráðherra Danmerkur, ætlar að beita sér fyrir að samkomulag náist á fyrri hluta ársins um að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að Schengen-vegabréfasamstarfinu. Danmörk er nú í forsæti Evrópusambandsins. Holland stendur eitt aðildarríkja ESB gegn Schengen-aðild Rúmeníu og Búlgaríu, eftir að Finnland lét af andstöðu sinni. Afstaða hollenzkra stjórnvalda byggist á því að löndin tvö hafi ekki náð nægilegum árangri í baráttunni við spillingu og skipulagða glæpastarfsemi og réttarkerfið sé of veikt. Þau séu því ekki í stakk búin að gæta ytri landamæra Schengen-svæðisins. „Ég vona að lausn finnist fljótlega. Það á að meta öll ríki út frá sömu skilyrðum og ekki beita tvöföldu siðgæði, þar sem sum ríki þurfa að uppfylla strangari skilyrði en önnur,“ sagði Bødskov á fundi með blaðamönnum frá ýmsum Evrópuríkjum í Kaupmannahöfn í gær. „Búlgaría og Rúmenía hafa lagt mikið á sig að uppfylla skilyrði Schengen-aðildar og Danir munu, á meðan þeir eru í formennsku ESB, halda áfram að reyna að finna lausn sem allir geta sætt sig við.“ Ríkisstjórn vinstriflokkanna í Danmörku hefur aðra afstöðu til Schengen-samstarfsins en hægristjórnin sem sat á undan henni og lét það verða eitt sitt fyrsta verk að aflétta á ný eftirliti á landamærunum að Svíþjóð og Þýzkalandi, sem komið var á í fyrra. - óþs
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira