Innlent

"Stjórnarskráin ver okkur fyrir Þór Saari“

Veiðar úr hreindýrahjörð er ekki hægt að leggja að jöfnu við veiðar úr staðbundnum laxastofnum, segir formaður Landssambands veiðifélaga.
Veiðar úr hreindýrahjörð er ekki hægt að leggja að jöfnu við veiðar úr staðbundnum laxastofnum, segir formaður Landssambands veiðifélaga.
Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga, gerir alvarlegar athugasemdir við að Þór Saari, alþingismaður Hreyfingarinnar, setji „eignarrétt veiðiréttareigenda á veiðihlunnindum innan gæsalappa og tali eins og ríkisvaldið hafi það í hendi sér að gera þau upptæk“.

Í Fréttablaðinu í gær sagði frá hugmynd Þórs Saari um að stangveiðileyfum í ám og vötnum verði úthlutað eins og hreindýraveiðileyfum til að jafna möguleika manna á að komast í stangveiði á skaplegu verði. Landeigendur fái greitt þótt það verði lægri upphæðir en nú er.

Óðinn telur út í hött að leggja að jöfnu skipulag veiða úr hreindýrahjörð og veiðar úr staðbundum laxastofnum. „Sem betur fer ver stjórnarskrá lýðveldisins þegnana fyrir svona stjórnmálamönnum eins og Þór Saari,“ segir hann. „Það er algjörlega fráleitt að stjórnmálamenn gæli opinberlega við hugmyndir um að hægt sé að þjóðnýta veiðihlunnindi jarða eins og hendi sé veifað. Í fyrsta lagi þurfa að vera þau lagaskilyrði fyrir slíku að almannahagsmunir krefjist. Síðan þyrfti ríkissjóður að borga fyrir öll herlegheitin.“

Að mati Óðins virðist Þór ekki átta sig á að nýting veiðihlunninda skili þjóðarbúinu miklum gjaldeyri. „Mér finnst þessar hugmyndir hans vera fyrst og fremst sorglegar fyrir hann sjálfan sem þingmann og ekki til þess fallnar að auka álit á Alþingi Íslendinga.“ - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×